fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Ólöf er nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. maí 2022 13:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi en starfið var auglýst laust til umsóknar nýlega.

Ólöf er menntaður hjúkrunarfræðingur og hefur einnig MS gráðu í stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Hún hefur víðtæka starfsreynslu frá störfum sínum á Norðurlöndum og hér heima og langa reynslu af hjúkrunarstjórnun, aðallega frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún hefur starfað undanfarin ár. Ólöf hefur í störfum sínum öðlast mikla reynslu af þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta, innleiðingu nýrra kerfa, nýtingu mannauðs, endurskipulagningu eininga og daglegri stjórnun hjúkrunar. Hún hefur jafnframt yfirgripsmikla klíníska reynslu sem hjúkrunarfræðingur og lagt rækt við þau tengsl samhliða stjórnunarstörfum, bæði hérlendis og erlendis.

Ólöf kemur að fullu til starfa á Reykjalundi 1. júlí en mun þó strax í vikunni hefja störf að hluta.

„Við bjóðum Ólöfu velkomna í Reykjalundarhópinn en það er sannarlega fengur að fá hana til  okkar,“ segir í tilkynningu frá forstjóra Reykjalundar, Pétri Magnússyni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri
Fréttir
Í gær

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“