fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Ófagrar niðurstöður nýrrar könnunar – Svona sjaldan skipta einhleypir karlar á rúminu sínu

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 22. maí 2022 22:00

Ætli hann sé einhleypur?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir sem hafa búið undir sama þaki og ungir einhleypir menn vita vel að hjá þeim er þrifnaður ekki alltaf í fyrirrúmi. Þetta á auðvitað ekki við um alla.

Oft eru karlar, almennt séð, sagðir draslarar og ganga sóðalega um og þá sérstaklega unglingar og ungir menn. Þessi fordómar dynja oft á þeim og því er haldið fram að þeir nenni ekki að þrífa , taka til, þvo þvottinn og þess háttar.

Vice segir að af þessum fordómum eigi að minnsta kosti einn við rök að styðjast ef miða má við niðurstöður nýrrar könnunar. Í henni voru 2.250 ungir og einhleypir breskir karlar spurðir út í hreingerningavenjur sínar. Þegar spurt var út í hversu oft þeir skipta á rúminu sínu er óhætt að segja að niðurstaðan hafi verið frekar slæm og hætt við að margar mæður fái fyrir hjartað þegar þær sjá þessar niðurstöður.

Tæplega helmingur sagðist aðeins skipta á rúminu sínu á fjögurra mánaða fresti og 12% sögðu að lengri tími en það gæti liðið á milli þess að þeir skipti um lak og sængurver.

Þetta er nú ekki huggulegt og ekki síst í ljósi þess að við eyðum um þriðjungi lífs okkar í rúminu. Í sængurfatnaðinn berst sviti, dauðar húðfrumur og fleira þegar við sofum. Svo dettur auðvitað eitt og annað í rúmið ef við borðum uppi í rúmi. Það er því mikilvægt að skipta reglulega á rúminu.

Af þessari niðurstöðu má draga þá ályktun að það sé skynsamlegt að hafa sín eigin rúmföt með ef sofa á í rúmi ungs einhleyps manns.

Hér fyrir neðan er myndband sem veitir kannski smá innblástur í hvernig er hægt að skipta hratt

á rúminu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Pressan
Fyrir 4 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum