Arnar Tómas Valgeirsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, vann fyrir nokkrum árum hjá fyrirtæki sem stóð fyrir fjölskyldubingói í Vinabæ um páskana. Arnar segir frá umræddu bingói í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
„Sípiprandi og barnlausum var mér ekki boðið í herlegheitin þótt það hefði auðvitað ekki verið illa séð ef ég hefði mætt einsamall. Bara pínu sorglegt,“ segir Arnar.
Þegar það kom í ljós að það vantaði öll skrifföng var Arnar kallaður út til að redda málunum. Að launum fékk hann nokkur bingóspjöld þegar hann mætti með alla pennana í Skipholtið. „Ég var að rifna úr spennu yfir að fá að taka þátt en þorði þó ekki að sýna það verandi sirka tveimur áratugum yfir meðalaldri keppenda,“ segir hann.
„Verandi af miklum bingóættum var ég fljótur að fylla spjald og þaut upp á svið til að nálgast góssið. Tvö páskaegg og Bluetooth-hátalara.“
Arnar segir að „brúna gullið“ hafi þó ekki verið auðunnið þar sem auk hans höfðu tvö kornung börn einnig fengið bingó. Þau álpuðust upp á sviðið ásamt Arnari í fylg foreldra svo hægt væri að útkljá hver fengi vinninginn. „Það gat jú aðeins verið einn,“ segir hann.
„Samstarfskona mín gaf mér augnaráð sem lýsti augljósri vanþóknun á þeirri ákvörðun minni að stíga ekki til hliðar svo að börnin gætu fengið aðalvinninginn en ég stóð sem fastast. Hlutkesti var varpað til að ákvarða sigurvegara og auðvitað vann ykkar maður.“
Börnin sem höfðu einnig fengið bingó þurftu að sætta sig við annað og þriðja sætið á meðan Arnar baðaði sig í sigrinum. „Ég skóf ekkert af fagnaðarlátunum og tók nokkur dansspor fyrir viðstadda,“ segir hann.
„Ég var fljótur að klára eggin en hátalarann nota ég enn í stað alvöru græja í bílnum mínum. Ég get fullyrt að ég hafi fengið mun meira út úr vinningnum en börnin hefðu nokkurn tímann. Ég sé ekki eftir neinu. Börn mega alveg tapa stundum.“