fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Dalvíkurmálið: „Dómurinn leggur sig fram um að réttlæta ofbeldi gegn barni“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 23. febrúar 2022 16:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UNICEF á Íslandi, Barnaheill og heimili og skóli hafa birt sameiginlega yfirlýsingu þar sem dómur Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli fyrrverandi íþróttakennara við Dalvíkurskóla sem rekinn var úr starfi fyrir að löðrunga 13 ára stúlku er harðlega gagnrýndur. Dómurinn mat uppsögnina ólöglega og dæmdi kennaranum 8 milljónir króna í skaðabætur.

Sjá einnig: Foreldrar stúlku sem lenti í átökum við kennara í Dalvíkurskóla stíga fram – „Dóttir okkar stimpluð sem forhertur vandræðagemlingur“

Málið hefur verið mikið í fréttum undanfarið eftir að foreldrar stúlkunnar stigu fram og gagnrýndu einhliða umfjöllun um málið. Í gær greindi DV frá því að Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra taldi eftir rannsókn lögreglu að kennarinn hefði gerst sekur um brot á hegningarlögum og barnaverndarlögum.

Sjá einnig: Lögreglustjóri taldi kennarann hafa brotið hegningarlög og barnaverndarlög

Samtökin gagnrýna orðlag í dómnum harðlega í yfirlýsingu sinni og segja tóninn vera þannig að gert sé lítið úr ofbeldi gegn barni þó að öllum ætti að vera ljós mikill valda- og aðstöðumunur þegar barn og fullorðinn einstaklingur takast á. Í yfirlýsingunni segir:

„Þrátt fyrir að í dómnum sé fjallað um ofbeldi kennara gegn barni vísar dómurinn hvergi til 19. greinar Barnasáttmálans eða réttinda barnsins yfir höfuð. Þá er ekki minnst á að milli barns og fullorðins einstaklings ríkir valdaójafnvægi sem gerir barnið tilfinningalega, vitsmunalega og líkamlega viðkvæmara. Þess í stað er orðfæri dómsins gildishlaðið og látið að því liggja að viðbrögð barnsins hafi verið röng en viðbrögð fullorðna aðilans hafi verið rétt og jafnvel eðlileg. Þannig segir orðrétt í dómnum: „Dómurinn telur viðbrögð stefnanda skiljanleg í ljósi aðstæðna þótt ekki sé hægt að samþykkja þau“. Þetta kemur vafalaust flestum sem vinna með börnum spánskt fyrir sjónir og sem betur fer beitir fagfólk alla jafna ekki ofbeldi. Raunar treystum við því sem samfélag að fagfólk beiti ekki ofbeldi og á grundvelli þess trausts senda foreldrar börnin sín í skóla án fylgdar.“

Segja samtökin ámælisvert að í dómnum sé hvergi að finna viðurkenningu á viðkvæmri stöðu barnsins ná áréttingu á því að ekki skuli beita börn ofbeldi, sem og að fagfólki beri skylda til að vernda börn. Yfirlýsingin er eftirfarandi í heild sinni:

„Að gefnu tilefni vilja UNICEF á Íslandi, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Heimili og skóli – Landssamtök foreldra ítreka að samkvæmt 19. grein Barnasáttmálans skulu stjórnvöld gera allar viðeigandi ráðstafanir til að vernda barn gegn hvers kyns ofbeldi meðan það er í umsjá foreldra, lögráðamanns eða annarra. Þegar barn hefur sætt illri meðferð skal tryggja nauðsynlegan stuðning og ef við á tryggja afskipti dómara.1

Ofbeldi gegn börnum er vandamál á Íslandi og upplifa rúm 6% barna ofbeldi af hendi fullorðins aðila fyrir 18 ára aldur.2 Í byrjun árs 2021 bentu Umboðsmaður barna, Tabú og Þroskahjálp í bréfi til dómsmálaráðuneytisins og Dómstólasýslunnar á að alþjóðlegar rannsóknir leiði í ljós að börn og ungmenni með fötlun séu í mun meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi. Samt sem áður fer aðeins lítill hluti slíkra mála fyrir dómstóla og minni líkur eru á sakfellingu en í öðrum sambærilegum málum.3 Baráttufólk fyrir réttindum barna hefur í áratugi unnið að því að breyta viðhorfum til barna og tryggja velferð þeirra og öryggi. Það var því reiðarslag að lesa dóm sem féll í héraðsdómi Norðurlands eystra þar sem skeytingaleysi gagnvart réttindum barna og úreltar hugmyndir skutu aftur upp kollinum.

Þrátt fyrir að í dómnum sé fjallað um ofbeldi kennara gegn barni vísar dómurinn hvergi til 19. greinar Barnasáttmálans eða réttinda barnsins yfir höfuð. Þá er ekki minnst á að milli barns og fullorðins einstaklings ríkir valdaójafnvægi sem gerir barnið tilfinningalega, vitsmunalega og líkamlega viðkvæmara. Þess í stað er orðfæri dómsins gildishlaðið og látið að því liggja að viðbrögð barnsins hafi verið röng en viðbrögð fullorðna aðilans hafi verið rétt og jafnvel eðlileg. Þannig segir orðrétt í dómnum: „Dómurinn telur viðbrögð stefnanda skiljanleg í ljósi aðstæðna þótt ekki sé hægt að samþykkja þau“. Þetta kemur vafalaust flestum sem vinna með börnum spánskt fyrir sjónir og sem betur fer beitir fagfólk alla jafna ekki ofbeldi. Raunar treystum við því sem samfélag að fagfólk beiti ekki ofbeldi og á grundvelli þess trausts senda foreldrar börnin sín í skóla án fylgdar.

Ámælisvert er að í dómnum er hvorki að finna viðurkenningu á viðkvæmri stöðu barnsins né áréttingu dómara á því að aldrei skuli beita börn ofbeldi og að fagfólki beri skylda til að vernda börn.
Vísað er til reglugerðar sem ítrekar skyldu starfsfólks til þess að bregðast við ef háttsemi nemenda leiðir af sér hættu fyrir aðra4 og laga sem kveða á um að nemendur skulu hlíta fyrirmælum starfsfólks
1
„Aðildarríki skal gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntunarmála til að
vernda barn gegn hvers kyns líkamlegu og andlegu ofbeldi, meiðingum, misnotkun, vanrækslu, skeytingarleysi,
illri meðferð eða notkun, þar á meðal kynferðislegri misnotkun, meðan það er í umsjá annars eða beggja
foreldra, lögráðamanns eða lögráðamanna, eða nokkurs annars sem hefur það í umsjá sinni. Eftir því sem við á
skulu meðal slíkra verndarráðstafana vera virkar ráðstafanir til að koma á félagslegri þjónustu til að veita barni
og þeim sem hafa það í sinni umsjá nauðsynlegan stuðning, og til að koma á öðrum forvörnum, svo og til að
greina, tilkynna, vísa áfram, rannsaka, taka til meðferðar og fylgjast með tilfellum er barn hefur sætt illri
meðferð svo sem lýst hefur verið, svo og ef við á til að tryggja afskipti dómara.“

2 UNICEF á Íslandi 2019. Staða barna á Íslandi: Ný tölfræði um þróun ofbeldi gegn börnum á Íslandi. Sótt 22
febrúar 2022: https://unicef.is/sites/unicef.is/files/atoms/files/stadabarnaaislandi_final_0.pdf

3 Umboðsmaður barna, Tabú og Þroskahjálp. 2021. Bréf til dómsmálaráðuneytisins og Dómstólasýslunnar. Sótt
22 febrúar 2022: Ofbeldi-gegn-fotludum-bornum_UB_ThH_Tabu.pdf (barn.is)

4 Reglugerð um ábygð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040/2011“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag