fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Sjáðu atvikið sem gerði stuðningsmenn Chelsea brjálaða út í Lukaku eftir tapið í gær

Helgi Sigurðsson
Sunnudaginn 16. janúar 2022 12:15

Romelu Lukaku. GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir stuðninsgmenn Chelsea hafa látið reiði sína í ljós á samfélagsmiðlum vegna handabands Romelu Lukaku, framherja liðsins, og Kevin De Bruyne, leikmanns Manchester City, eftir leik liðanna í gær.

Man City vann leikinn 1-0. Fyrri hálfleikur var nokkurs konar skák á milli þjálfara liðanna. Liðin náðu bæði að koma sér nokkrum sinnum í álitlegar stöður en lítið var um dauðafæri. Chelsea varðist vel og leyfði sóknarmönnum Manchester City lítið að gera fram á við og var enn markalaust er flautað var til hálfleiks.

Manchester City var með betri stjórn á seinni hálfleiknum og Kevin De Bruyne braut ísinn á 70. mínútu með laglegu skoti vel fyrir utan teig. Þetta reyndist sigurmark leiksins og Manchester City styrkti stöðu sína í toppsætinu. Manchester City er með 56 stig í 1. sæti en Chelsea er með 43 stig í 2. sæti.

Lukaku og De Bruyne voru liðsfélagar hjá Chelsea á árum áður. Lukaku er nú mættur aftur til Chelsea en De Bruyne fór til Wolfsburg áður en hann mætti svo aftur í ensku úrvalsdeildina og sló í gegn með Man City.

Eftir leik fór vel á með þeim félögum. Það pirraði stuðningsmenn Chelsea sem hefðu viljað sjá Lukaku sína aðeins meiri tilfinningar eftir að hafa svo gott sem misst af Englandsmeistaratitlinum með tapinu í gær.

Lukaku sneri aftur til Chelsea frá Inter í sumar fyrir 100 milljónir evra. Hjá Chelsea hefðu menn viljað sjá meira frá honum. Belginn hefur skorað fimm mörk í fjórtán leikjum í úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“

Einum manni brá oft fyrir í svörum leikmanna Vals – „Það góða er að hann heldur sjálfur að hann sé með svo flottan stíl“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“