fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
433

Sextán leikmenn sömdu við Tindastól

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 4. janúar 2022 14:15

Myndatexti: Við undirritunina í gær. Á myndinni eru í efri röð frá hægri: Donni, Kristófer Rúnar, Benedikt Kári, Eysteinn Ívar, Sverrir Hrafn, Ísak, Sigurður Pétur, Svend Emil, Jón Gísli og Emil Óli. Í neðri röð frá hægri eru: Bragi, Jóhann Daði, Hólmar Daði, Anton Helgi, Arnar, Jónas Aron og Einar Ísfjörð. Mynd: SMH

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær skrifuðu 16 leikmenn undir tveggja ára samning við Knattspyrnudeild Tindastóls. Undirritunin fór fram í vallarhúsinu áður en leikmenn héldu á æfingu, en þeir hafa flestir æft með liðinu frá því í október. Leikmennirnir sem skrifuðu undir eru: Anton Helgi jóhannsson, Arnar Ólafsson, Benedikt Kári Gröndal, Bragi Skúlason, Einar Ísfjörð Sigurpálsson, Emil Óli Pétursson, Eysteinn Ívar Guðbrandsson, Hólmar Daði Skúlason, Ísak Sigurjónsson, Jóhann Daði Gíslason, Jón Gísli Stefánsson, Jónas Aron Ólafsson, Kristófer Rúnar Yngvason, Sigurður Pétur Stefánsson, Svend Emil Busk Friðriksson og Sverrir Hrafn Friðriksson.

“Þetta er frábær blanda af ungum leikmönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokks fótbolta og í bland við leikmenn sem hafa spilað í mörg ár og eru aðeins eldri og reynslumeiri,” segir Halldór Jón Sigurðsson eða Donni eins og hann er iðulega kallaður, aðalþjálfari meistaraflokka Tindastóls og yfirmaður knattspyrnumála. Donni segir að það sé risastór yfirlýsing út í samfélagið að þessi hópur leikmanna sé búinn að skrifa undir við félagið.

“Þetta sýnir að leikmenn ætla að þétta sér saman og vilja koma liðinu aftur upp um deild og helst deildir á næstu árum.”

“Tindastóll er frábært félag og á heima ofar að okkur öllum finnst. Þessir strákar sýna það hér í verki að þeir hafi trú á því sem við ætlum okkur að gera og vilja leggja sitt af mörkum til þess að það verði að veruleika.” Að lokum segir Donni að Tindastóll sé skemmtilegri vegferð með fótboltan í heild sinni.

“Hún mun taka nokkur ár en við sem erum næst þessu erum sannfærð um að ef allir leggjast á eitt þá getur samfélagið verið ennþá stoltara af knattspyrnunni hjá Tindastól.” Vænta má að fleiri leikmenn skrifi undir hjá knattspyrnudeildinni í meistaraflokk kvenna og karla á næstu vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Allar æfðu í krefjandi veðri – „Það er helvítis hiti“

Allar æfðu í krefjandi veðri – „Það er helvítis hiti“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Lið í London hefur áhuga á því að kaupa Zinchenko frá Arsenal

Lið í London hefur áhuga á því að kaupa Zinchenko frá Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Alonso skipar Real Madrid að hætta við það að kaupa framherja

Alonso skipar Real Madrid að hætta við það að kaupa framherja
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal að klára kaupin á danska landsliðsmanninum – Partey á förum

Arsenal að klára kaupin á danska landsliðsmanninum – Partey á förum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Drengurinn ungi vakti gríðarlega athygli á búningadegi í skólanum

Drengurinn ungi vakti gríðarlega athygli á búningadegi í skólanum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir Bruno Fernandes að taka liðsfélaga sinn og bomba hann hressilega niður á fyrstu æfingu

Segir Bruno Fernandes að taka liðsfélaga sinn og bomba hann hressilega niður á fyrstu æfingu
433Sport
Í gær

Þegar 2 milljónir urðu að 50 milljónum á nokkrum dögum – Verðmiði sem Skagamenn tóku ekki í mál

Þegar 2 milljónir urðu að 50 milljónum á nokkrum dögum – Verðmiði sem Skagamenn tóku ekki í mál
433Sport
Í gær

Mikael biður Halldór að halda kjafti – „Á að rétta honum umslag“

Mikael biður Halldór að halda kjafti – „Á að rétta honum umslag“