fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Nefndin lét lögreglu vita af mögulegum vitnum í máli Arons Einars og Eggerts

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. desember 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útektarnefnd ÍSÍ lét lögreglu vita af mögulegum vitnum í máli Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar þegar hún vann skýrslu sína fyrir KSÍ. Vísir.is vakti fyrst athygli á þessum hluta í skýrslunni.

Íslensk kona sakar Aron Einar og Eggert um að hafa nauðgað sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Lagði hún fram kæru í haust vegna þess. Báðir hafa hafnað sök í málinu, þeir voru kallaðir til skýrslutöku á dögunum og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Meira:
Mál Arons og Eggerts – Fólk sem tengdist landsliðinu fékk vitneskju um „að eitthvað hefði gerst í ferðinni sem átti ekki að gerast“

Í skýrslunni er fjallað um þetta mál og rætt er við einstaklinga sem voru í eða í kringum A-landslið karla í september árið 2010 þegar liðið mætti Danmörku í Kaupmannahöfn.

Í skýrslunni kemur fram að enginn geti sagt til um hvað hafi gerst. „Allir þessir einstaklingar lögðu þó áherslu á að þeir hefðu ekki verið í aðstöðu til að fullyrða neitt um hvað hafi gerst í raun. Geir Þorsteinsson, þáverandi formaður KSÍ, greindi nefndinni frá því í viðtali að hann hafi ekki heyrt af þessu máli fyrr en í ágúst 2021, löngu eftir að hann hætti störfum hjá KSÍ. Að því er varðar þá einstaklinga sem úttektarnefndin ræddi við um málið og töldu sig geta tjáð sig um atvik málsins af eigin raun hefur nefndin aftur á móti litið til þeirra upplýsinga sem fram hafa komið opinberlega í fjölmiðlum um að hafin sé sakamálarannsókn á málinu,“ segir í skýrslunni.

Nefndin lét svo lögreglu og þessa einstaklinga vita að þeir gætu haft stöðu vitnis í þessu máli. „Til þess að raska ekki þeirri rannsókn hefur nefndin komið þeirri ábendingu á framfæri við umrædda einstaklinga og lögreglu að þeir kunni að hafa stöðu vitnis í málinu. Með því er þó ekki tekin nein afstaða til atvika málsins árið 2010 af hálfu nefndarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segir fjölmiðla flytja tóma steypu – „Mjög alvarlegt“

Segir fjölmiðla flytja tóma steypu – „Mjög alvarlegt“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eru klár í slaginn við Arsenal

Eru klár í slaginn við Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum
Lineker skýtur á BBC
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir hegðun Chelsea merki um lélegan undirbúning – Vildi aldrei gera þetta á ferli sínum

Segir hegðun Chelsea merki um lélegan undirbúning – Vildi aldrei gera þetta á ferli sínum
433Sport
Í gær

Cole Palmer sagður mjög spenntur fyrir því að fara til United

Cole Palmer sagður mjög spenntur fyrir því að fara til United