fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Syrgja fílskálf sem missti ranann í gildru veiðaþjófa og hafði það ekki af

Pressan
Fimmtudaginn 18. nóvember 2021 22:00

MYND/EPA-EFE

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dýraverndunarsinnar í Indóensíu eru miður sín eftir að eins árs gamall fílskálfur drapst á dögunum eftir að hafa misst helminginn af rana sínum í gildru veiðiþjófa. BBC greinir frá.

Það voru þorpsbúar í indónesíska bænum Aceh Jaya sem fundu kálfinn stórslaðan í gildrunni. Hann var fluttur í dýraathvarf þar sem hann komst undir læknishendur. Til þess að bjarga lífi kálfsins neyddust dýralæknar til þess að skera helminginn af rana dýrsins unga. Kálfurinn ungi tórði síðan í tvo daga eftir aðgerðina en talið er að sýking hafi orðið honum að aldurtila.

Fílskálfurinn skömmu fyrir andlát sitt MYND/EPA-EFE

„Við gátum ekki bjargað honum því meiðsli hans voru svo slæm og þegar komin sýking í þau,“ hefur BBC eftir Agus Arianto, yfirmanni dýraathvarfsins í Aceh Jaya.

Súmatrafílar eru í bráðri útrýmingarhættu vegna ágangs manna á náttúruleg heimkynni þeirra á indónesísku eyjunum Súmötru og Borneó. Karlkynsfílar eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu því veiðiþjófar ásælast skögultennur þeirra sem eru seldar á svörtum markaði.

Dauði kálfsins er nýjasta dæmið um röð tilvika á svæðinu þar sem fílar drepast eftir árásir veiðiþjófa. Í júlí fannst afhöfðað hræ fullvaxins fíls og höfðu skögultennur hans verið fjarlægðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld