fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Fernt handtekið vegna bílþjófnaðar – Tölvuleikjaspilun leiddi til tilkynningar um heimilisofbeldi

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 8. nóvember 2021 05:15

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðdegis í gær var fernt handtekið í Háaleitis- og Bústaðahverfi grunað um nytjastuld á ökutæki og þjófnað. Allt var fólkið vistað í fangageymslu.

Á Miklubraut var ekið á bifreið á sjöunda tímanum og stakk tjónvaldur af frá vettvangi.

Á tíunda tímanum voru tveir fluttir á lögreglustöð eftir að tilkynnt var um slagsmál í Hlíðahverfi. Viðkomandi var sleppt eftir viðræður á lögreglustöðinni.

Einn var handtekinn í Miðborginni á öðrum tímanum í nótt eftir að hafa ekið á móti rauðu ljósi. Viðkomandi er grunaður um ölvun við akstur.

Á fjórða tímanum fauk vinnupallur á bifreið í miðborginni.

Á tólfa tímanum var tilkynnt um heimilisófrið í Grafarholti. Við athugun lögreglu kom í ljós að svo var ekki, það var verið að spila tölvuleik með tilheyrandi hávaða.

Einn var handtekinn í Grafarholti á tólfta tímanum en sá er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ekki víst að Guðmundur Ingi snúi aftur í barna- og menntamálaráðuneytið

Ekki víst að Guðmundur Ingi snúi aftur í barna- og menntamálaráðuneytið
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“