Ástandið í Covid-19 faraldrinum hér á landi vakti athygli fjölmiðlamannsins Anderson Cooper og kollega hans á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN. Í nótt birti Twitter-síða þáttarins Anderson Cooper 360° brot úr þættinum þar sem fjallað var um Ísland og baráttuna hér við kórónuveiruna.
„Meira en milljón ný smit á dag í Bandaríkjunum í liðinni viku, meira en í nokkru öðru landi og meira en 1.000 manns hafa látið lífið á hverjum degi,“ segir Cooper í upphafi myndbandsins en bendir svo á jákvæðan punkt, bólusetningar hafa gengið örlítið betur í Bandaríkjunum.
„Þetta þarf ekki að vera svona“
Til að sýna að bólusetningar virki og dragi úr smitum ákvað Cooper og hans teymi að benda á Ísland. „Þetta þarf ekki að vera svona, ef fleiri myndu láta bólusetja sig þá væru þessar tölur miklu miklu lægri. Ef þú vilt vita hvernig það myndi líta út þarftu ekki að leita lengra en til Íslands,“ segir Cooper en fréttamaðurinn Gary Tuckman gerði sér ferð hingað til lands til að kanna ástandið.
Gary ræddi við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og spurði hann hvers vegna ástandið væri svona gott hér á landi. Þá ræddi hann einnig við Pál Matthíasson, forstjóra Landspítalans, og Má Kristjánsson, yfirlækni á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Þeir höfðu öllu sömu söguna að segja, góður árangur í bólusetningum er ástæðan fyrir lægri tíðni dauðsfalla hér á landi. Það vakti sérstaklega athygli CNN að enginn hefur látið lífið á Íslandi vegna veirunnar síðan í maí.
„Give me a break“
Eftir að hafa rætt við Þórólf, Pál og Má, ákvað Gary að taka stöðuna á íslenskum almenningi. Hann spurði tvær stelpur sem sátu saman á Sólon hvort þær væru bólusettar. Þær svöruðu játandi og sögðu að þær þekktu engan sem er ekki bólusettur. Það kom CNN-liðinu á óvart því það er ekki erfitt að finna einstaklinga úti á götu í Bandaríkjunum sem ekki eru bólusettir.
Að lokum var heyrt í Gary í beinni útsendingu. Gary stóð á Ingólfstorgi og sjá mátti íslenska djammara í bakgrunninum að bíða eftir leigubílum. Þegar Gary hafði rætt við Cooper í stutta stund ákváðu nokkrir hressir íslenskir djammarar að ganga fyrir framan myndavélina. Einn þeirra ákvað að stoppa fyrir framan myndavélina og gretta sig.
Þetta vakti ekki mikla ánægju hjá Gary. „Give me a break,“ sagði hann við djammarana og bað þá svo um að sýna virðingu. „Be respectful.“
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan en íslensku djammararnir eru í lok þess:
Iceland has been able to lower deaths from Covid-19 to zero and maintain it since May.
CNN's Gary Tuchman traveled to Reykjavík to look at how Iceland has been able to do it. pic.twitter.com/Kg6V5qfELj
— Anderson Cooper 360° (@AC360) August 26, 2021