fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Orðið á götunni: Þögn Júróvisjón hópsins um smitið vekur upp grunsemdir um maðk í Júrómysunni – „Á hann kannski ekkert að vera þarna?“

Heimir Hannesson
Þriðjudaginn 18. maí 2021 10:30

Hópurinn er nú í sóttkví á þessu hóteli í Rotterdam. „Ekkert frábært, en fínt,“ sagði Rúnar Freyr Gíslason um kotið. mynd/nh-hotels.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að þjóðin hafi verið slegin yfir fréttum helgarinnar um að smit hafi greinst í íslenska Júróvisjón-hópnum en á sunnudag tilkynnti hópurinn að einn væri smitaður og allt gengið komið í sóttkví. Seint í gærkvöldi sagði RUV svo frá því að engin fleiri smit hefðu komið upp í hópnum. Fyrir liggur að hópurinn gistir á sama hóteli og hópur pólskra Júróvisjónfara sem greindist með Covid-19 fyrir helgi. Enn er þó á huldu hver sá smitaði í íslenska hópnum er og hvernig hann smitaðist. Einungis hefur verið sagt að sá sé ekki hluti af sjálfu bandinu sem kemur til með að spila fyrir Íslands hönd. Annað fæst ekki gefið upp.

Samtals eru 14 manns í hópnum, bandið sjálft telur sex einstaklinga. Eftir standa átta. Einn af þeim er nú veikur af Covid-19.

Eins og fyrr sagði er gengið allt í sóttkví og samkvæmt frétt Vísis um málið í gærkvöldi er bandið þeirra á meðal. Sýni voru tekin úr öllum í hópnum á sunnudag þegar smitið kom upp og reyndust þau öll neikvæð í gærkvöld. Annar umgangur af sýnum verður svo tekinn á miðvikudag og fimmtudag og reynist staðan óbreytt munu Daði Freyr og Gagnamagnið spila fyrir dómara á miðvikudagskvöld og svo í beinni útsendingu í undanúrslitum á fimmtudaginn. Hópurinn er því áfram í sóttkví til miðvikudags og aðrir jafnvel fram á fimmtudag. Herma heimildir DV að dvölin leggist misþungt á einstaklinga í hópnum. Eins og frægt er er Rotterdam ein mesta hjólreiðaborg heims og skyldudvöl á hótelherbergi með útsýni yfir hjólandi Hollendinga því vafalaust krefjandi upplifun fyrir Gísla Martein Baldursson, hvers hjólreiðaást er landsmönnum öllum kunn.

Áfram fá Júróvisjónaðdáendur að bíða með öndina í hálsinum eftir frekari fréttum frá Rotterdam.

Séra Jónar í Júróhópnum bólusettir

DV greindi svo frá því í gær að bandið hefði allt verið sprautað með Covid-19 bóluefni Janssen fyrir um það bil tveim vikum en þau fengu sérstaka undanþágu hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Sagði Þórólfur í samtali við blaðamann DV í gær að beiðni um að koma Júró-hópnum framfyrir forgangsröð sem lögfest var með reglugerð ráðherra hafi komið frá RÚV. „Ég vona að það hafi verið rétt ákvörðun,“ sagði hann jafnframt. Hópurinn fékk Janssen bóluefnið 5. maí. Ellefu dögum síðar var einn úr hópnum kominn með Covid. Aðspurður um hvernig á þessu stæði sagði Þórólfur: „Öll bóluefni eru þannig að það tekur 2-3 vikur að ná virkni en beiðnin kom ekki fyrr en þetta þannig að …“

Þórólfur viðurkenndi þá að undanþágur sem þessi væru almennt ekki veittar. Sagði Þórólfur í viðtali við aðra fjölmiðla um sama mál að undanþágan hafi meðal annars verið veitt þar sem umræddur hópur væri á leið til útlanda „á vegum íslenska ríkisins þar sem er mikil útbreiðsla.“ Vöktu þau orð bæði athygli og úlfúð á samfélagsmiðlum. Anton Sveinn Mckee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, vísaði til fréttarinnar og sagði hana eins og að fá blauta tusku í andlitið. „Hvort sem leikarnir verða eða ekki, þá þarf að undirbúa sig og ferðast á lágmarksmót. Einn afreksíþróttamaður missti af mikilvægum stigum því hann fékk Covid á keppni erlendis,“ skrifaði hann jafnframt. „Ekki sama hvort það sé Jón eða séra Jón.“ Þá má nefna að allflestir flutningsskyldir starfsmenn íslensku utanríkisþjónustunnar voru ekki bólusettir, þrátt fyrir að vera „á vegum íslenska ríkisins þar sem er mikil útbreiðsla.“

Sjá nánar: Eurovisionförum hleypt framfyrir röð í bólusetningu – „Ég vona að það hafi verið rétt ákvörðun“

Eins og við var að búast hefur upplýsingaóreiða RUV um málið kallað fram viðbrögð á samfélagsmiðlum. Velti Jakob Bjarnar, blaðamaður Vísis, því meðal annarra í gær hvort þöggunarviðbrögð hópsins væru tilkomin vegna þess að sá smitaði átti kannski ekkert að vera þar sem hann er. „Ég ætla að grísa á að þetta sé annað hvort Stefán Eiríksson eða Logi Bergmann,“ velti Jakob fyrir sér á Facebook í gærkvöldi. Egill Helgason afsannaði það reyndar fljótt þegar hann sagðist hafa séð Stefán á „rafskottu“ í vestur á Nesvegi í fyrrakvöld.

Guðmundur Franklín Jónsson, ekki-forseti þrátt fyrir góða tilraun, blandar sér svo í umræðuna: „Hrikalega spennandi, eiginlega jafn mikið og hvort við lendum ekki í fyrsta sæti skv. veðbönkum. Svo er alltaf spurning með kostnaðinn af svona, ég sé að þau hafa 2 nýja gítara…en ganga í sömu bolunum…sem er soldið RÚV.“

Hvað sem vangaveltum þeirra Jakobs, Guðmundar, Egils og fleiri líður, er ljóst að spennan fyrir keppninni er mikil og má búast við að margir hér heima þenji nýútvíkkuð sóttvarnarviðmið til hins ítrasta á fimmtudagskvöld þegar bandið stígur á stokk í beinni, reynast þau „negatief“ á ný.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Í gær

Um 157 milljón króna gjaldþrot hjá fasteignafélagi Sverris Einars

Um 157 milljón króna gjaldþrot hjá fasteignafélagi Sverris Einars
Fréttir
Í gær

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum
Fréttir
Í gær

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Í gær

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi