fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Reffilegar og rakaðar stjörnur

Tobba Marinósdóttir
Laugardaginn 3. apríl 2021 11:30

Mynd: Samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margar skærustu stjörnur Hollywood hafa á einhverjum tímapunkti rakað af sér hárið af hinum ýmsu ástæðum. Algengast er stjörnurnar hafi rakað hárið af sér fyrir hlutverk, en dóttir Bruce Willis, Tallulah bað föður sin um að raka af sér hárið í sóttkví.

TALLULAH WILLIS
Tallulah Willis dóttir Bruce Willis og Demi Moore lét lokkana fjúka á síðasta ári þegar hún var í sóttkví ásamt foreldrum sínum og systur. Það var enginn annar en stórleikarinn faðir hennar sem rakaði af henni hárið en hann er einmitt krúnurakaður líka. Fal­legt höfuðlag fjölskyldunnar ber klippinguna vel eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Demi rakaði hár sitt af fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni G.I. Jane árið 1997.

 

CARA DELEVINGNE
Cara Delevingne fyrirsæta og leikkona rakaði af sér hárið fyrir hlutverk í myndinni Life in a year (2020). Áður en hún hafði landað hlutverkinu hafði hún greint umboðsmanni sínum frá því að ef hún fengi hlutverkið myndi hún raka af sér hárið. Myndin fjallar um unga konu sem á ár eftir ólifað sökum veikinda.


SIGOURNEY WEAVER
Sigourney Weaver var ein sú fyrsta til að láta lokkana fjúka fyrir hlutverk. Hún fékk samkvæmt seigum sögu­sögnum 4 milljónir Bandaríkjadala fyrir að raka af sér hárið fyrir tökur á myndinni Alien. Hvort sem það er satt eða ekki borgaði fórnin sig engu að síður þar sem hún lék í 4 Ailien kvikmyndum.

TONI COLETTE
Toni Colette rakaði hárið á sér árið 2015 af fyrir hlutverk sit t í Miss You Already þar sem hún leikur konu sem berst við krabba­mein. Leikkonan þurfti að raka höfuð sitt fimm sinnum á meðan á tökum stóð og segir það hafa verið afar frelsandi.

CHARLIZE THERON
Charlize Theron rakaði hárið á sér fyrir leik sinn í kvikmyndinni Mad Max: Fury Road sem kom út árið 2015. Leikkonan vinsæla er ein þeirra sem virðist bera hvaða greiðslu og háralit sem er.

KIRSTEN STEWART
Kirsten Stewart rakaði hárið af sér við tökur á myndinni Und­erWater (2020) þar sem hún leikur rannsóknarkonu á rann­sóknarstöð undir yfirborði sjávar. Stewart sagði hlutverkið hafa verið fyrirtaks afsökun til að raka af sér hárið, þar sem hana hafi langað að prófa það lengi.

MYNDIR/PINTEREST

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda