Viviana Di Pascua, móðir Lucas Torreira, leikmanns Arsenal, féll á dögunum frá eftir baráttu við Covid-19.
Di Pascua var aðeins 53 ára gömul og var flutt á sjúkrahús í Úrúgvæ með Covid-19 sjúkdóminn á dögunum.
Torreira, sem er nú á láni hjá Atletico Madrid frá Arsenal fékk leyfi frá félaginu til þess að ferðast til Úrúgvæ.
Leikmaðurinn átti í mjög góðu sambandi við móður sína og hafði einnig látið húðflúra á sig andlitsmynd af henni á fótlegg sinn.