Aðili sem var í svokallaðri skimunarsóttkví í sumarbústað á Suðurlandi reyndist hafa fengið ættingja í heimsókn til sín. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi í dag. Um er að ræða færslu sem fór yfir störf lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku.
„Aðili þessi hafði skilað neikvæðu PCR prófi við komu til landsins og skimun á landamærum verið neikvæð. Allt að einu var gestinum gert að sæta sóttkví þar til niðurstaða seinni skimunar liggur fyrir,“ segir í dagbókarfærslunni en málið var sent ákæruvaldi til meðferðar.
Í dagbókinni kom einnig fram að aðfaranótt 25. febrúar hafi íbúi á Selfossi vaknað við mannaferðir í íbúð sinni.
„Sá flúði út en í ljós kom að viðkomandi hafði haft á brott með sér húsmuni sem fundust skammt frá vettvangi. Aðili sem passaði við nokkuð greinargóða lýsingu tilkynnanda fannst skömmu síðar nærri vettvangi og var hann handtekinn og færður í fangageymslu á Selfossi. Yfirheyrður daginn eftir en kannaðist þá ekki við meint brot,“ segir lögreglan en málið er í áframhaldandi rannsókn.
Þá var nokkuð um umferðarlagabrot í umdæminu en 33 ökumenn voru í vikunni kærðir fyrir of hraðan akstur. Ökumaður fólksbifreiðar ók hraðast þann 25. febrúar en hann mældist á 149 kílómetra hraða á klukkustund. 5 ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis, tveir þeirra svöruðu jákvætt við fíkniefnaprófi.