fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Fréttir

Birgir Svan er látinn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 29. desember 2020 16:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Svan Símonarson skáld og kennari er látinn, 69 ára að aldri. Hann lést á jóladag, þann 25. desember, á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Vísir greindi fyrst frá.

Birgir barðist við krabbamein í meira en áratug þar til kallið kom á jóladag. Meðal eftirlifandi aðstandenda er sonur hans, Símon Birgisson, þekktur blaðamaður og rithöfundur. Símon hefur lofað hugulsemi og kærleik líknardeildarinnar í skrifum um föður sinn.

Birgir var um tíma mjög þekkt ljóðskáld en hann var í skáldahópnum Listaskáldin vondu sem sló í gegn á áttunda áratugnum. Meðal annarra meðlima hópsins voru Sigurður Pálsson, Megas, Steinunn Sigurðardóttir, Pétur Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn.

Birgir gaf út yfir 20 ljóðabækur, auk barnabóka, þýðinga og smásagna. Hann var orðheppinn og hnyttinn höfundur með ísmeygileg tök á tungumálinu og kraumandi þjóðfélagsádeila einkenndi sum verka hans. Skáldið og heimspekingurinn Stefán Snævarr ritaði grein um skáldskap Birgis á Stundina í vor og sagði meðal annars:

„Birgir Svan Símonarson er huldumaðurinn í íslenskri ljóðlist. Hann hefur gefið allar sínar bækur út sjálfur, þær eru vart  til sölu í bókabúðum og hafa fæstar verið sendar til ritdóma.

En huldumönnum í þjóðsögunum er oft lýst sem hæfileikamönnum, hið sama gildir um Birgi Svan sem að minni hyggju er eitt albesta skáld minnar kynslóðar.

Fyrsta bók hans kom út árið 1975 og fjallaði um veruleika  verbúðanna og frystihúsanna. Sama stef og svipuð er að finna í næstu bókum hans. En á níunda tug aldarinnar breytir hann um stíl og viðfangsefni, ljóðin verða persónulegri, ljóðrænni og draumkenndari, mun síður pólitísk og hversdagsleg.“

DV sendir aðstandendum og vinum Birgis Svans Símonarsonar innilegar samúðarkveðjur.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Hvað ert þú að bralla núna, Elísabet?“

„Hvað ert þú að bralla núna, Elísabet?“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Rangur maður handtekinn í Hafnarfirði – Dómsúrskurður beindist að röngu húsnúmeri

Rangur maður handtekinn í Hafnarfirði – Dómsúrskurður beindist að röngu húsnúmeri
Fréttir
Í gær

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Guðni ómyrkur í máli – Þetta sér hann hvergi annars staðar en á Íslandi

Guðni ómyrkur í máli – Þetta sér hann hvergi annars staðar en á Íslandi
Fréttir
Í gær

Var sá eini sem komst lífs af úr flugslysinu – Svona er staðan fimm mánuðum síðar

Var sá eini sem komst lífs af úr flugslysinu – Svona er staðan fimm mánuðum síðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varpa ljósi á hnífamanninn: „Djöfullinn mun ekki sigra“

Varpa ljósi á hnífamanninn: „Djöfullinn mun ekki sigra“