Á tíunda tímanum í gærkvöldi réðust þrír menn og ein kona á par og veittu þeim áverka. Árásaraðilar voru farnir af vettvangi þegar lögreglan kom. Þeir eru grunaðir um hótanir, eignaspjöll og rán auk líkamsárásar. Málið er í rannsókn.
Á tólfta tímanum í gærkvöldi sást til manna fara inn í skúr við Ingólfstorg og stela skautum. Málið er í rannsókn.
Skömmu fyrir miðnætti var ökumaður handtekinn í Mosfellsbæ en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna/lyfja. Bifreiðin, sem hann ók, var með röng skráningarnúmer og ótryggð. Hald var lagt á skráningarnúmerin og maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Þrír ökumenn voru handteknir í nótt, grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Tveir þeirra voru einnig staðnir að ítrekuðum akstri sviptir ökuréttindum og sá þriðji að ítrekuðum akstri án gildra ökuréttinda.