Pierre-Emerick Aubameyang framherji Arsenal er ekki í góðu skapi í verkefni með Gabon en liðinu var haldið á flugvelli í Gambíu í fleiri klukkustundir í nótt.
Liðin etja kappi í Afríkukeppninni í þeirri von um að komast inn í lokamótið. Þegar liðsmenn Gabon lentu á flugvellinum í Gambíu voru vegabréf þeirra tekinn.
Liðið var látið dúsa á flugvellinum í sex klukkutíma áður en þeim var hleypt inn í landið. „Þvílíkt kvöld á flugvellinum,“ skrifaði Aubameyang og merkti knattspyrnusamband Afríku inn í færsluna.
„Ég vil bara vita hvers vegna Gambía hélt vegabréfum okkar í fleiri klukkustundir, erum við í gíslingu? Ætlið þið að loka augum ykkar fyrir þessu? Ég vil sjá næsta þátt af þessum farsa,“ skrifaði framherjinn reiður.
Aubameyang sagði að þessi framkoma á flugvellinum myndi bara kveikja í leikmönnum Gabon fyrir leikinn mikilvæga gegn Gambíu.
Liðinu var hleypt út af flugvellinum rétt fyrir 06:00 að staðartíma en leikurinn gið Gambíu hefst klukkan 16:00 að staðartíma.