fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Yfirlýsing frá Sjálandsskóla vegna eineltismálsins

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. október 2020 12:33

Sjálandsskóli. Mynd: Zeppelin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálandsskóli hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna afar grófs eineltismáls í skólanum sem DV fjallaði um í morgun.

Sjá einnig: Grimmilegt eineltismál í Sjálandsskóla

Í yfirlýsingunni er staða málsins hörmuð og áréttað að einelti sér ávallt tekið alvarlega og lögð áhersla á að leysa slík mál. Greint er frá því að unnið sé markvisst gegn einelti í skólanum og námskeið sótt hjá vináttufærnifélaginu KVAN:

„Við hörmum þá stöðu sem upp er komin vegna eineltismáls sem fjallað hefur verið um á opinberum vettvangi.

Unnið hefur verið eftir eineltisáætlun Garðabæjar síðan tilkynning til skólans barst um þetta tiltekna mál.

Einelti er alltaf tekið alvarlega og lögð er rík áhersla á að leysa slík mál.

Skólinn getur ekki tjáð sig um mál einstaka nemenda en mikilvægt er að það komi fram að unnið hefur verið með nemendum skólans í félagsfærni og vináttuþjálfun um langt skeið. Meðal annars hafa allir kennarar skólans sótt námskeið hjá KVAN þar sem kennarar geta sótt í verkfærakistu til að efla og þjálfa félagsleg samskipti. Þeirri vinnu verður haldið áfram í skólanum í samvinnu við fræðslusvið Garðabæjar.

Skólinn hefur lagt sig fram um að vinna öll eineltismál og samskiptamál sem upp koma faglega og af festu.

Við biðlum til allra að huga að því að hér er um að ræða börn og mikilvægt að sýna aðgát í orðræðu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“
Fréttir
Í gær

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Í gær

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga