Manchester City vann 1-0 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld í tíðindalitlum leik.
Raheem Sterling skoraði eina mark leiksins er hann kom Manchester City yfir með marki á 23. mínútu.
Manchester City er eftir leikinn í 10. sæti deildarinnar með 7 stig. Arsenal er í 5. sæti með 9 stig.
Manchester City 1 – 0 Arsenal
1-0 Raheem Sterling (’23)