fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Bæjarstjóri Akureyrar vill ekki að íbúar höfuðborgarsvæðisins fari út á land

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 6. október 2020 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, biður íbúa höfuðborgarsvæðisins um að fara ekki út á land þar sem minna er um kórónuveirusmit á landsbyggðinni en í kringum Reykjavík.

Þetta segir Ásthildur í samtali við RÚV. Hún segir að íbúar á Akureyri séu að fylgja reglum og þess vegna sé svo lítið af smitum þar, miðað við höfuðborgarsvæðið. Á höfuðborgarsvæðinu greindust í gær 95 smit en 99 smit greindust í heildina. Þá eru 640 á höfuðborgarsvæðinu af þeim 747 sem eru í einangrun.

Bæjarstjórinn segist vera sammála Þórólfi Guðnasyni sóttvarnarlækni um að herða aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu. „Mér finnst þær mjög eðlilegar þessar aðgerðir og skiljanlegar,“ segir Ásthildur og bætir við að þær hefðu kannski mátt taka gildi fyrr.

Þá segist hún ekki óttast að íbúar á höfuðborgarsvæðinu muni ferðast út á land vegna hertu aðgerðirnar. „Nei ég held að fólk muni bara halda sig heima,“ segir hún.

„Eins og er verið að biðja fólk um að gera. Að sjálfsögðu biðjum við líka fólk um að halda sig heima. Að það sé ekki að fara út á land þar sem minna er um smit. Það er ástæða fyrir því að hér er lítið um smit. Fólk fer mjög varlega. Akureyringar fylgja reglum. Og það er ástæða fyrir því að faraldurinn hefur ekki leikið okkur verr en hann hefur gert hingað til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni
Fréttir
Í gær

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust
Fréttir
Í gær

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Í gær

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Í gær

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast