Rúnar Alex Rúnarsson gæti þreytt frumraun sína með Arsenal á morgun liðið heimsækir Liverpool í enska deildarbikarnum.
Ensk blöð eru þó ekki viss um að Mikel Arteta muni spila Rúnari sem hefur verið á bekknum í tvígang eftir félagaskiptin til Lundúna.
Rúnar sat á bekknum á sunnudag þegar liðin mættust í deildinni en búast má við að Arteta og Jurgen Klopp stjóri Liverpool geri talsverðar breytingar.
Rúnar Alex gekk í raðir Arsenal fyrir tæpum tveimur vikum frá Dijon og á að veita Bernd Leno samkeppni í marki Arsenal.
Hér að neðan er líklegt byrjunarlið Arsenal á morgun að mati The Sun.