fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Segir stjórnvöld spila póker með líf landsmanna – „Hvers virði er hvert mannslíf?“

Jón Þór Stefánsson
Sunnudaginn 9. ágúst 2020 19:10

Inga Sæland þingmaður

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, formaður Flokks Fólksins virðist ekki parsátt með stjórnvöld eða sóttvarnarteymið. Hún skrifaði pistil þess efnis sem birtist á Facebook-síðu hennar í dag. Inga ber þar saman aðgerðir stjórnvalda þegar að faraldurinn kom fyrst hingað til lands og svo núna. Hún vill meina að að græðgi ferðaiðnaðarins fái meira svigrúm en lífsgæði íbúa landsins.

„Hvaða endemis rugl er það sem er borið á borð fyrir okkur nú í auga stormsins? Sóttvarnarteymið fær ekki leið á að segja okkur að landinu hafi jú aldrei verið lokað, til að réttlæta innfluttning veirunnar. EN ÞAÐ ÁTTU ALLIR AÐ FARA Í TVEGGJA VIKNA SÓTTKVÍ ÞÁ, sem er miklu öflugri aðgerð en nú er við líði þar sem liðlega 50.000 einstaklingar hafa komið til landsins frá 15. júní án þess að vera skimaðir eða farið í sóttkví. Lífsgæði okkar eru hreinlega fótum troðin fyrir ferðaþjónustu sem var að stórum hluta tæknilega gjaldþrota um síðustu áramót, þ.e fyrir Covid. Vegna græðgi og offjárfestinga í greininni var hún að niðurlotum komin þrátt fyrir tvær og hálfa milljón ferðamanna til landsins árlega.“

Inga segist hafa viljað sjá viðburði líkt og Þjóðhjátíð í Eyjum vera haldna, auk annaramenningarviðburða, auk þess sem skólar hefðu átt að fara á fullt. Hún bendir á stjórnvöld í Nýja Sjálandi og segist lýta upp til þeirra, en þar hefur landamærum verið lokað með fáeinum undantekningum. Þá veltir hún fyrir sér orðum þeirra sem segja að við verðum að læra að lifa með veirunni og spyr: Hvað með þá sem eru í áhættuhópi?

„Flokkur fólksins segir NEI TAKK, við hefðum viljað sjá Þjóðhjátíð í Eyjum, við viljum sjá ALLA skóla á fullu ferðinni, alla okkar menningu og heilbrigðisþjónustu og bara ALLT. fá að virka og ganga áfarm sinn vana gang í friði, sjá samfélag án samkomutakmarkana, tveggja metra reglu og ótta við hið óþekkta. Við í Flokki fólksins lítum upp til stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem fumlaust hafa tekið á vandanum og vitað hvað þau voru að gera. Þau uppskera samkvæmt því og njóta virðingar alls samfélagsins um leið. Að ætla að spila póker með líf okkar, mannréttindi og frelsi vegna sérhagsmuna sem valdhafarnir eru að verja er með öllu óásættanlegt svo ekki sé dýpra í árina tekið. það er löngu orðið tímabært að við fáum að vita hvað skattgreiðendur eru að borga með mislukkuðum aðgerðum stjónvalda með tilliti til „ábatans“ sam af þeim verður. Hvers virði er hvert mannslíf? það er lágmark að við fáum að vita ábtann af því að flytja veiruna svo grimmilega til landsins og segja okkur síðan að við verðum að kingja því og læra að lifa með henni. Hvað þýðir að læra að lifa með henni fyrir þá sem eru í svo kölluðum áhættuhópi? Jú það þýðir að loka sig inni og gleyma því að eiga fjölskyldu og vini nema í gegnum fjarbúanað í tölvu fyrir þá sem hafa tök á að nýta slíkt, en það eru sannarlega margir sem geta það ekki. Ég hef horft á eftir einstaklingum á besta aldri ofan í gröfina af allt öðrum völdum en Covid-19 þar sem þeim var einfaldlega vísað frá heilbrigðisþjónustu og sagt að fara heim og taka því rólega.“

Að lokum segir Inga að stjórnvöld verði að setja fólkið í landinu í fyrsta sæti og kallar eftir veirufríu Íslandi.

„Í boði stjónvalda erum við að greiða allt of hátt verð fyrir sérhagsmunagæsluna. Það er kominn tími til að setja okkur fólkið í landinu í fyrsta sæti og það STRAX ! Við viljum ekki læra að lifa með Covid-19 við viljum veirufrítt Ísland hvað sem það kostar, mannslífin eru ómetanleg til fjár.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki