fbpx
Fimmtudagur 07.ágúst 2025
Fréttir

Níddist kynferðislega á fötluðum skjólstæðingi sínum – Sagðist hafa veitt honum sjálfsfróunarhjálp

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 13. júlí 2020 17:38

Héraðsdómur Reykjavíkur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ónefndur maður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta vegna kynferðisbrota gegn fötluðum manni. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 30. júní. Brotaþolinn er fatlaður, með djúpa þroskahömlun, ódæmigerða einhverfu, heilalömun og flogaveiki. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að hinn ákærði hafi misnotað andlega og líkamlega fötlun mannsins til að svala fýsnum sínum.

Maðurinn var kennari brotaþola í átta ár og sinnt honum einnig á frístundaheimili eftir skóla. Foreldrar þolandans treystu manninum og grunaði þau aldrei neitt misjafnt. Maðurinn var ákærður og sakfelldur fyrir að hafa misnotað skjólstæðing sinn í þrjú skipti vorið 2016, í Heiðmörk, á salerni í Egilshöll við  Fossaleyni 1 og á salerni á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu 41.

Rétt eftir brotið í Heiðmörk kom þolandinn til foreldra sinna sem fannst hann ekki sjálfum sér líkur. Þau urðu vör við sæði í nærbuxum hans og getnaðarlimur hans var rauðþrútinn. Er þau gengu á hinn ákærða viðurkenndi hann að hafa veitt syni þeirra sjálfsfróunarhjálp þar sem hann kallaði eftir slíku og gott væri fyrir hann að fá þannig tilfinningalega útrás þar sem hann væri flogaveikur. En foreldrar mannsins könnuðust ekki við að hann hefði nokkurn tíma sýnt áhuga á kynlífi. Framburður þeirra dómi var á þá leið að þetta gæti ekki staðist enda hefði sonur þeirra engan skilning á kynlífi eða vitund um það. Móðir brotaþolans varð vör við sæði í næxbuxum hans í tveimur öðrum tilvikum er hún var að hjálpa honum að skipta um föt.

Hinn ákærði neitaði því að brotaþolinn gæti ekki gert sig skiljanlegan varðandi kynferðislegar langanir. Framkoma hans væri mismunandi en í skóla hefði hann til dæmis verið ofbeldisfullur en ljúfur heima hjá sér.

Tilkvaddur matsmaður við dóminn sagði að þolandinn væri ófær um að skilja þýðingu þess verknaðar sem kært er fyrir, láta í ljós löngun eftir honum eða sporna við honum. Orðrétt segir þar:

„Í ljósi þeirrar alvarlegu vitsmunalegu skerðingu sem Abýr við er ljóst að hann var hvort tveggja í senn ófær um að skiljaþýðingu þess verknaðar sem kært er fyrir, láta í ljós ósk um að verknaður væri framkvæmdur né spornað gegn honum. Meintur gerandi hefur því getað notfært sér andlegt ástand Atil að framkvæma þá athöfn sem kært er fyrir.“

Sem fyrr segir var hinn ákærði fundinn sekur og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann var dæmdur til að greiða þolanda sínum 1,2 milljónir króna í skaðabætur og allan sakarkostnað, sem er ríflega þrjár milljónir króna.

Sjá dóm Héraðsdóms

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Harður árekstur á Skeiða- og Hrunamannavegi

Harður árekstur á Skeiða- og Hrunamannavegi
Fréttir
Í gær

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“
Fréttir
Í gær

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi
Fréttir
Í gær

Flóttamaður gagnrýnir flóttamenn – Íslendingar sagðir vera með fordóma ef útlendingi er hrósað fyrir að tala góða íslensku

Flóttamaður gagnrýnir flóttamenn – Íslendingar sagðir vera með fordóma ef útlendingi er hrósað fyrir að tala góða íslensku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eigendur brugghúss ósáttir við Kaleo og hafa engar skýringar fengið – „Við erum vonsvikin“

Eigendur brugghúss ósáttir við Kaleo og hafa engar skýringar fengið – „Við erum vonsvikin“