fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Svona var staðan í Hagkaup í Skeifunni klukkan 9 í morgun

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 28. apríl 2020 09:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á meðfylgjandi myndum má sjá stöðuna í verslun Hagkaupa í Skeifunni, þá einkum í grænmetisdeildinni núna í morgun um níu leytið, en þar var nokkuð tómlegt um að litast.

Í samtali við blaðamann sagði starfsmaður að stöðuna megi rekja til takmarkanna á innflutning og aukinnar sölu.

En geta ástæðurnar verið fleiri? Þessi tiltekna verslun er opin allan sólarhringinn. Neytendur í dag nýta sér margir slíkar verslanir til að geta verslað utan álagstíma, þegar minna er að gera og því smithætta minni. Sú gula hefur látið sjá sig undanfarna daga og því margir að líkindum búnir að draga fram grillið og fólk er almennt frekar farið að hætta sér í matvöruverslanir sökum rénunar COVID-19 hér á landi.  Svo eru líklega margir farnir að huga að heilsunni og mataræðinu og sækja því frekar í grænmetið.

Á dögunum komst ársgömul frétt um Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, aftur á flug á samfélagsmiðlum. Karl greindi frá því á síðasta ári að hann sneiði hjá innfluttu grænmeti. Íslenskt grænmeti hafi algjöra sérstöðu vegna lítillar notkunar sýklalyfja í landbúnaði og lágs hlutfalls sýklaónæmis.

Miðað við stöðuna í Hagkaup í dag vaknar þó spurningin hvort innlent grænmeti ráði hreinlega við eftirspurn

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“