fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Eyjan

Ásthildur skipuð skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 17:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Ásthildi Knútsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára. Ráðherra skipar Ásthildi að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem metur hæfni umsækjenda. Niðurstaða nefndarinnar var að Ásthildur væri mjög vel hæf til að gegna starfinu. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Ásthildur er hjúkrunarfræðingur að mennt með MBA í stjórnun frá University of St. Thomas í Minneapolis. Hún hefur starfað sem settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu frá 1. apríl 2019, starfað um árabil sem sérfræðingur í sama ráðuneyti og einnig gegnt stöðu sem staðgengill skrifstofustjóra. Á árunum 2003 – 2006 var Ásthildur deildarfulltrúi heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins hjá Fastanefnd Íslands í Genf. Þar hafði hún m.a. umsjón með málefnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna setu Íslands í framkvæmdastjórn stofnunarinnar.

Eins og fram kemur í mati nefndarinnar sem mat hæfni umsækjenda hefur Ásthildur starfað lengi innan Stjórnarráðsins og býr því að góðri þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún hefur einnig mjög langa starfsreynslu á heilbrigðissviði og áralanga reynslu af alþjóðlegu samstarfi á sviði heilbrigðismála.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir að Ásthildur hafi mikla yfirsýn og þekkingu á sviði lýðheilsu, forvarna og heilbrigðismála almennt, bæði hvað varðar stefnumótun og faglega greiningu. Þess er einnig getið sérstaklega að hún hafi að sögn umsagnaraðila óvenjulega góða hæfni í mannlegum samskiptum, láti vel að leiða saman ólík sjónarmið og ná sameiginlegri niðurstöðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Steindautt samband

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Steindautt samband
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þetta er ræðukóngurinn á yfirstandandi þingi – 10 málglöðustu þingmennirnir hafa samtals talað í 182,4 klukkustundir

Þetta er ræðukóngurinn á yfirstandandi þingi – 10 málglöðustu þingmennirnir hafa samtals talað í 182,4 klukkustundir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum