fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025

Manuela og Jón opinbera sambandið: Fengu sér tattú í stíl – Sjáðu myndirnar

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 24. janúar 2020 12:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir hefur mikið verið á faraldsfæti undanfarið, ekki síður vegna ástarlífsins. Undanfarið hefur hún verið að stinga saman nefjum við samkvæmisdansarann Jón Eyþór Gottskálksson, en þau hafa verið að leiða saman hesta sína í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað.

Þau Manuela og Jón hafa nú opinberað rómantíkina eins og fram kemur í umfjöllun Vísis. Bæði eru þau Jón Eyþór og Manuela með opna Instagram-reikninga þar sem þau leyfðu fylgjendum sínum að fylgjast með þeim njóta lífsins meðal annars hefur Jón Eyþór lýst því yfir að honum þætti Manuela fullkomin í alla staði.

Á Instagram-síðu Reykjavík Ink má sjá að parið hafi fengið sér tattú í sambærilegum stíl. Hún hafi fengið sér hjartadrottningu og hann hjartakóng, eins og sjá má á myndinni að neðan.

Má þess geta að í kvöld verður haldin símakosning til söfnuðar fyrir samtökin Ljónshjarta, en þau samtök eru Manuelu afar kær enda er hún einnig með tattú af ljónshjarta. Umrædd samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Sjálf missti Manuela Ósk föður sinn þegar hún var mjög ung.

„Ég tala nánast aldrei um föðurmissinn samt er það líklegast það atvik sem mótaði mig mest. Pabbi minn dó þegar ég var tveggja ára og ég ólst því upp með söknuð í eitthvað sem ég aldrei þekkti,“ segir Manuela í viðtali við Vísi.

Manuela kveðst vera ótrúlega stolt af því sem þau Jón hafa gert í sjónvarpsþættinum og rifjar hún upp hvað hefur staðið hvað mest upp úr að svo stöddu. „Mér leið best þegar við dönsuðum tangó. Það var í jólaþættinum þannig að sviðið var svo fallegt og hátíðlegt og ég var líka mjög skotin i kjólnum sem ég var í. Öll þessi litlu atriði skipta máli því þegar manni líður vel þá skín það í gegn í dansinum,“ segir Manuela.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Mætti á sína fyrstu æfingu í tíu mánuði

Mætti á sína fyrstu æfingu í tíu mánuði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Mjög óvænt skref í lífinu: Dómari þegar fegursta kona í heimi verður kjörin – „Við elskum að sjá fallegar konur“

Mjög óvænt skref í lífinu: Dómari þegar fegursta kona í heimi verður kjörin – „Við elskum að sjá fallegar konur“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ragnhildur segir fólk sem hagar sér svona siðferðislega gjaldþrota

Ragnhildur segir fólk sem hagar sér svona siðferðislega gjaldþrota

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.