fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Helga hneyksluð yfir hægaganginum – „Þetta versnar bara og versnar – Finnst ykkur þetta eðlilegt?“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. janúar 2020 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir hægaganginn hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að afgreiðslu mála á fjölskyldusviði.

Hún segist reglulega athuga gang mála vegna starfa sinna í lögmennsku, er henni blöskraði hægagangur kerfisins í málefnum barna- og fjölskyldna:

„Þetta versnar bara og versnar þrátt fyrir fögur fyrirheit og stofnun nefnda. Hvað á nefnd að gera fyrir börn sem ekki fá að hitta annað foreldri sitt? Hvað á nefnd að gera fyrir foreldra sem geta ekki leyst úr málum sínum í kjölfar skilnaðar/sambúðarslita, vegna ágreinings um börn, eignir eða enn alvarlegra – vegna ofbeldis? Hvað á nefnd að gera fyrir foreldra sem bíða eftir samþykki til ættleiðingar?“

Sjá einnig: Lýsir „ófremdarástandi“ hjá embætti Sýslumanns:„Algjörlega óboðlegt!“

Eðlilegt ?

Helga greinir síðan frá biðtímanum á afgreiðslu ýmissa brýnna mála, en stysti biðtíminn er hálft ár:

„Staðan er svona: Erindi vegna umgengni og forsjár barna sem bárust eftir 20 maí í fyrra eru enn ekki komin til úthlutunar. Það er semsagt 8 mánaða bið eftir fyrsta viðtali.

Eftir fyrsta viðtal er það svo að málum sem vísað var til sáttameðferðar eftir 14. maí 2019 bíða enn úthlutundar. Þetta er lögbundið ferli sem ALLIR sem eiga börn verða að fara í. (aðrir átta mánuðir)

Ættleiðingarmál, sem ekki koma frá Íslenskri ættleiðingu, og bárust eftir 10 júlí 2019 bíða enn úthlutunar. (6 mánuðir)

Erindi er varða meðlag, sérstakt meðlag eða menntunarframlag og bárust eftir 20 maí 2019 bíða enn úthlutunar. (8 mánuðir)

Finnst ykkur þetta eðlilegt?“

Vanræksla ríkisstjórnar

Helga segir ýmsa innviði drabbast niður hjá hinu opinbera:

„Ríkisstjórnin er hér enn einu sinni að vanrækja innviði og hér lögbundna opinbera þjónustu. Það skiptir engu máli hvert litið er, heilbrigðiskerfið, löggæsla og sýslumenn, fjölskyldumál, samgöngukerfið. Allt fær þetta að drabbast niður áfram þrátt fyrir hagsæld.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins