fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Fréttir

Sekt fyrir að aka yfir á rauðu ljósi hækkar verulega þann 1. janúar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. desember 2019 08:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna umferðarlagabrota tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi í samræmi við við ný umferðarlög sem einnig taka gildi þann dag. Á vef stjórnarráðsins er farið yfir helstu breytingar vegna reglugerðarinnar en þar má til dæmis sjá að sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi hækkar verulega.

Helstu breytingar vegna reglugerðarinnar eru eftirfarandi: 

  • Akstur gegn rauðu ljósi. Sekt hækkar úr 30.000 kr. í 50.000 kr.
  • Vegfarandi sinnir ekki skyldu við umferðaróhapp. Sekt verður 30.000 kr. Var 20.000-30.000 kr. eftir broti.
  • Ölvunarakstur: 
    – Vínandamagn í blóði 1,20-1,50‰ eða útöndunarlofti 0,60-0,75 mg/l.: Svipting ökuréttar í 1 ár og 6 mánuði  og 180.000 kr. sekt. Var 1 ár og 180.000 kr. sekt.
    – Vínandamagn í blóði 2,01-2,50‰ eða útöndunarlofti 1,01 -1,25 mg/l. Nýtt þrep í töflu. Svipting ökuréttar í 3 ár og 240.000 kr. sekt. Efsta þrep í töflu var 2,01‰ eða meira og svipting ökuréttar í 2 ár og 210.000 kr. sekt.
    – Vínandamagn í blóði 2,51‰ eða meira eða útöndunarlofti 1,26 mg/l eða meira. Nýtt efsta þrep í töflu. Svipting ökuréttar í 3 ár og 6 mánuði og 270.000 kr. sekt.
  • Fíkniefninu metamfetamín er bætt við töflu fyrir viðurlög vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.
  • Ein sektarfjárhæð fyrir hvert brot á aksturs- og hvíldartíma í stað þess að miða við prósentur.
  • Vanræksla flytjanda á að tryggja varðveislu upplýsinga úr ökurita og af ökumannskorti hækkar úr 20.000-50.000 kr. í 80.000-300.000 kr.
  • Þrepaskiptar sektarfjárhæðir fyrir brot á reglum um ásþunga/heildarþunga umfram leyfilega heildarþyngd í stað þess að miða við prósentur.
    – ásþungi/heildarþungi allt að 375 kg umfram leyfilega þyngd verður 60.000 kr.,
    – ásþungi/heildarþungi allt að 750 kg umfram leyfilega þyngd verður 120.000 kr.
    – ásþungi/heildarþungi allt að 1.500 kg umfram leyfilega þyngd verður 180.000 kr.
    – ásþungi/heildarþungi meira en 1.500 kg allt að 5.000 kg umfram leyfilega þyngd verður 240.000 kr.
    – 10.000 kr. sektarfjárhæð fyrir hver 100 kg umfram 2.000 kg.
  • Brot á reglum um flutning á hættulegum farmi. Sektir verða frá 50.000-150.000 kr.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Starfsmaður Útlendingastofnunar stærði sig af því að brjóta gegn þagnarskyldu – „Not all heroes wear capes“

Starfsmaður Útlendingastofnunar stærði sig af því að brjóta gegn þagnarskyldu – „Not all heroes wear capes“
Fréttir
Í gær

Stefnir í leiðindaveður á stórum hluta landsins á aðfangadagskvöld

Stefnir í leiðindaveður á stórum hluta landsins á aðfangadagskvöld
Fréttir
Í gær

„Þetta eru aðvörunarbjöllur sem ættu að klingja í eyrum okkar“

„Þetta eru aðvörunarbjöllur sem ættu að klingja í eyrum okkar“
Fréttir
Í gær

Tveir Íslendingar létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku og einn liggur lífshættulega slasaður á sjúkrahúsi

Tveir Íslendingar létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku og einn liggur lífshættulega slasaður á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bónus hefur styrkt góðgerðarmál um rúmlega 50 milljónir króna á síðustu fimm árum

Bónus hefur styrkt góðgerðarmál um rúmlega 50 milljónir króna á síðustu fimm árum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregluaðgerð með aðstoð sérsveitar stendur yfir á Selfossi

Lögregluaðgerð með aðstoð sérsveitar stendur yfir á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingar í alvarlegu slysi í Suður-Afríku

Íslendingar í alvarlegu slysi í Suður-Afríku