Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, efaðist aldrei um miðjumanninn Naby Keita sem hefur ekki heillað alla á Anfield.
Keita hefur ekki átt fast sæti í liði Liverpool síðan hann kom frá Þýskalandi en hefur verið flottur undanfarið.
,,Þegar þú sérð svona leikmann þá spyrðu þig af hverju hann sé ekki að spila í hverri viku,“ sagði Klopp.
,,Naby hefur verið meiddur og liðið hefur spilað vel, svo af hverju að breyta því? Ef þú vilt breyta til þá er gengið ekki svona gott.“
,,Naby hefur ekki verið að spila og ég næ því. Við höfum verið í sambandi og tölum mikið. Að lokum þarf leikmaðurinn sönnun um það að þjálfarinn hafi trú á sér.“
,,Ég efaðist aldrei um hann og laugardagurinn hjálpaði mikið, það var mjög gott.“