fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Kynning

Gerðu minningarnar ódauðlegar í persónulegum jólagjöfum frá Pixlar

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 22. nóvember 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmynda- og prentþjónustan Pixlar ehf. hefur í yfir fimmtán ár verið ein traustasta prentþjónusta landsins. Ásamt því að bjóða upp á hefðbundna prentun, filmuframköllun, strigaprentun, skönnun á myndum, filmum og slide-filmum, tölvuvinnslu, netframköllun og margt fleira er þar einnig að finna frábærar jólagjafahugmyndir á enn betra verði. Flest eigum við ógrynnin öll af myndefni af börnunum, vinunum, sjálfum okkur, gæludýrunum og öllum þeim framandi stöðum sem við höfum komið til. Óneitanlega myndu margar þessara ljósmynda sóma sér vel á einstöku dagatali, strigamynd eða jafnvel fallegri, innbundinni ljósmyndabók. Einnig ber að nefna að hjá Pixlar er mikið úrval af römmum og kartonum í ramma á mjög fínu verði.

Þú færð persónulegar og skemmtilegar jólagjafir handa vinum og vandamönnum hjá Pixlar. Á vefsíðu Pixlar , pixlar.is getur þú hannað falleg jólakort, persónulegar ljósmyndabækur og dásamleg dagatöl þar sem þú velur ljósmyndirnar af þinni eigin tölvu eða af samfélagsmiðlum. Við erum tengd við Facebook, Instagram. Því er hægt að hanna sitt eigið jólakort, ljósmyndabók eða dagatal í næstum hvaða tölvu sem er. Verð fyrir hvert stykki af korti er frá 180–300 kr. og umslög fylgja með.

Veggklukka með persónulegum ljósmyndum er frábær jólagjöf.


Gerðu minningarnar ódauðlegar

Ljósmyndabækur eru stórkostlega falleg og persónuleg jólagjöf hvort heldur er handa fjölskyldumeðlimum eða vinum. Ömmur og afar elska að skoða myndir af barnabörnunum og monta sig af þeim við meðlimi Rótarýklúbbsins eða fólkið í kórnum. Litlir símaskjáir henta illa í slíkt þar sem flest erum við nú orðin frekar sjóndöpur þegar komið er yfir sextugt. Einnig er stórgóð hugmynd, þegar vinir ferðast saman til útlanda, að gera ferðalagið ódauðlegt með því að prenta það á bók. Jólin eru fullkominn tími til þess að skoða ferðasöguna og minnast þess þegar hjálpsami maðurinn með sixpensarann hjálpaði þreyttum ferðalöngum að finna illa merkta airbnb-íbúð í framandi borg.

 

Persónuleg jólakort

Á vefsíðu Pixlar má hanna sitt eigið jólakort á einfaldan, þægilegan og ódýran máta. Hægt er að velja um hvort prenta eigi á ljósmyndapappír eða þykkan fallegan pappír sem hægt er að skrifa á. Þú byrjar á að velja stærðina á kortinu og útlitið. Næst skrifarðu fallega jólakveðju og svo lýkur ferlinu með því að velja ljósmynd. Hafðu í huga að panta jólakort í tæka tíð. Það tekur allt að fimm virka daga að prenta út pöntunina og þá sérstaklega þegar nær dregur jólum. Þá þarf að póstsetja kortin til þeirra sem eiga að fá jólakort þetta árið. Alltaf er gott að vera tímanlega þegar kemur að jólakortunum.

 

Skipulagið hefur aldrei verið skemmtilegra

Dagatöl eru nauðsynlegur staðalbúnaður fyrir skipulagsfúsa og verða að fallegu stofustássi þegar myndirnar eru af skemmtilegum minningum eða heittelskuðum fjölskyldumeðlimum. Á vefsíðu Pixlar má setja saman forkunnarfögur og persónuleg dagatöl. Mundu bara að það þarf tólf myndir fyrir tólf mánuði, og eina í viðbót fyrir forsíðuna. Einnig er hægt að setja margar myndir á hvern mánuð, allt eftir smekk hvers og eins.

Stórar veggmyndir

Strigamyndir og foam-myndir eru alltaf í hávegum hafðar og mikil sala í þeim allt árið hjá Pixlar, en þó sérstaklega fyrir hátíðarnar. Margir taka gríðalega fallegar myndir á símann sinn og myndir úr símum eru orðnar í dag í mjög góðri upplausn og því hægur vandi að prenta stórt og fegra veggi heimilisins eða vinnustaðarins. Starfsmenn Pixlar skoða allar myndir sem á að stækka með viðskiptavinum þannig að myndin njóti sín sem allra best. Best er að senda slíkar myndir sem viðhengi á pixlar@pixlar.is og leita álits hjá starfsfólki Pixlar.

Pixlar ehf. hefur einnig á undanförnum árum verið að hasla sér völl í prentun nafnspjalda, veggspjalda, bæklinga og annars auglýsingaefnis, sem hefur verið mjög farsælt. Einnig framleiða þeir töluvert af borðmerkingum, sætaskipan og matseðlum fyrir veislur ásamt alls konar skrautprentun fyrir slík tilefni.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Pixlar, pixlar.is

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík

Vefpóstur: pixlar@pixlar.is

Sími: 588-3700

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7