fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Markmiðasetning Camillu – Fer engar krókaleiðir: „Ég ætla ekki að lifa í stanslausum slag“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 11. október 2019 22:30

Camilla Rut hefur látið af sér kveða í tónlistinni. Mynd: Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan og samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut, betur þekkt sem CAMY, er móðir, söngkona og þáttastjórnandi vinsæla hlaðvarpsins Bara við.
Camilla var í spjalli við Dóru Júlíu í útvarpsþættinum Radio J’adora og talar þar um hvað hausinn skiptir miklu máli, að hún noti öðruvísi leið að markmiðasetningu. Hún segir það vanta oft í umræðuna um markmið og markmiðasetningu að njóta ferðalagsins en ekki lifa frá markmiði til markmiðs.

„Það virkar ekki fyrir mig að skrifa niður eitt markmið því þá tekur það yfir hjá mér, ég byrja að fresta, kvíðinn tekur við og að lokum feila ég og þá verð ég vonsvikin út í sjálfa mig,“ segir Camilla. „Ég skrifa niður hvað er ég að gera, af hverju er ég að gera það, hvert stefni ég og hvernig ætla ég að fara að því.“

Camilla hefur mikið talað um líkamsvirðingu á samfélagsmiðlum sínum. „Ef ég set mér það markmið að missa fimm kíló og fer á fullt að hreyfa mig og tek mataræðið í gegn, stíg svo á vigtina og fimm kíló eru farin. Er ég bara orðin besta manneskja í heimi þá? Það er ákveðinn ákveðinn ávinningur, en hvað svo? Það vantar oft í þessa umræðu þetta hugarfar að njóta og vera besta útgáfan af sjálfum sér í ferðalaginu.“

Þá segir söngkonan að það sé oft vanmetið hjá fólki að læra að njóta erfiðleikana sem upp koma í lífinu, að heilbrigt sé að sjá erfiði sem leið til að styrkja hugann og leysa vandamálið sem er fyrir hendi.

„Ef eitthvað kemur upp á, þá geng ég í gegnum það. Ég reyni ekki að labba einhverjar krókaleiðir til að komast fram hjá erfiðleikunum, sem ég upplifi að margir gera stundum. Ég verð að viðurkenna allar þessar tilfinningar. Svo lýkur þeim kafla og þá skoða ég hvað ég lærði af þessu. Ég ætla ekki að lifa í stanslausum slag við að beygja mér hjá þessum verkefnum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
Fyrir 3 klukkutímum

Kalda salsað hennar Kötlu hentar í allar veislur – „Þetta fer aldrei í nesti!“

Kalda salsað hennar Kötlu hentar í allar veislur – „Þetta fer aldrei í nesti!“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Skoða alvarleika meiðsla Ronaldo

Skoða alvarleika meiðsla Ronaldo
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.