fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Kynning

Loftstokkahreinsunin K2: Hreinsun loftræstikerfa í fjölbýlishúsum mikilvæg

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. mars 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loftstokkahreinsunin K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á Íslandi. Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri K2, segir fyrirtækið sinna einstaklingum sem og fyrirtækjum og það sé nóg að gera enda gríðarlega mikilvægt að hreinsa loftræstikerfi reglulega áður en þau skaða heilsu fólks.

Stundum er ekki þörf á hreinsun – þetta getið þið gert sjálf

Það kemur stundum fyrir að starfsmaður K2 mætir til að skoða loftræstingu, til dæmis í baðherbergi í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að ekki er þörf á hreinsun. Stundum þarf bara að skrúfa túðuna úr og þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir.

Þessi aðgerð er framkvæmd í þremur skrefum:
1. Þú byrjar á því að skrúfa miðjuna úr
2. Síðan snýrðu túðunni til að losa hana frá
3. Loks skolar þú túðuna og skrúfar hana síðan aftur

Þegar þörf er á hreinsun – hvernig fer hún fram?

„Loftræsting í fjölbýlishúsum er í flestum tilfellum á gluggalausum baðherbergjum og geymslum. Það er mjög mikilvægt að loftræstingin nái að losa raka og hita sem safnast upp því þegar loftstokkar eru skítugir og ná ekki að loftræsta rýmið þá er hætta á að raki þéttist í herberginu sem býður svo upp á skemmdir og jafnvel myglu.
Hreinsun fer þannig fram að starfsmenn K2 mæta og fara annaðhvort upp á þak eða á lagnaloft sé það til staðar, þaðan eru loftræstistokkar hreinsaðir frá þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og í sumum tilfellum sótthreinsaðir. Einnig er blásari hreinsaður sé hann til staðar.

Að því loknu þarf að fara inn í allar íbúðir í húsinu sem tengjast loftræstingunni og þar er lofttúðan tekin úr og þrifin, og restin af loftstokk hreinsuð. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki.
Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi frá baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“

Magnús bætir við að K2 bjóði upp á ástandsskoðun loftræstikerfa og mat á því hvort tími sé kominn á hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn hjá Loftstokkahreinsun K2 ehf. er 775-7770 og 557-7000.
Heimasíðan er: http://k2.is/.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7