fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Loftstokkahreinsunin K2: Hreinsaðu andrúmsloftið í skipinu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 22. september 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loftstokkahreinsunin K2 sérhæfir sig í hreinsun á loftstokkum, loftræstikerfum og eldhúsháfum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 og hefur síðan þá byggt upp mjög gott orðspor innan iðnaðarins. „Stór hluti verkefna okkar kemur til vegna tilvísunar viðskiptavina og endurtekinna viðskipta og við erum staðráðin í að veita fyrsta flokks þjónustu á samkeppnishæfu verði. Súrefni er manninum nauðsynlegt og okkar markmið er að það sé gott andrúmsloft í hverju einasta rými,“ segir Sigurður Jónsson, þjónustufulltrúi K2.

Loftstokkahreinsunin K2 er í nánu samstarfi við ýmis fyrirtæki sem hafa yfir að ráða viðamikilli sérþekkingu á ýmsum sviðum loftræstikerfa. „Með þessu samstarfi getum við tryggt viðskiptamönnum okkar ýmsa sértæka þjónustu sem hluta af heildarlausn, sé þess óskað.“

 

Loftstokkahreinsunin K2 hreinsar loftræstikerfi

„Eins hagnýtt og loftræstikerfi getur verið, á vinnustað, heima eða annars staðar í híbýlum fólks, getur það hæglega breyst yfir í andstæðu sína ef ekki er hugað að reglulegu eftirliti og þrifum á kerfinu.“ Byotrol-mistrið sem Loftstokkahreinsun K2 hefur notað með góðum árangri hefur valdið byltingu í sótthreinsun og er þar að auki náttúruvænt hreinsiefni. Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Mistrið smýgur um allt rýmið, líka á þá staði sem hefðbundnar hreinsunaraðgerðir ná ekki til. Byotrol er með öllu hættulaust. „Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu. Rannsóknir sýna að efnið er 99,9% virkt gegn bakteríum, þ.m.t. salmonellu, listeríu og sthaphylococcus.“

 

Skipverjar þurfa líka gott loft

Þurrt loft og yfir- eða undirþrýstingur getur haft víðtæk áhrif á líðan starfsmanna og viðskiptavina. Með því að hreinsa reglulega og hafa eftirlit með loftræstingu má koma í veg fyrir að slíkt gerist og í mörgum tilfellum auka afköst og fækka veikindadögum starfsmanna.

 

„Starfsmenn Loftstokkahreinsunarinnar K2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu.“ Umsögn frá Eimskipafélagi Íslands.

 

Fyrir fjölbýlishúsið

Eðlilegt er að gera úttekt á loftræstikerfi fjölbýlishúsa og hreinsa það á 3–5 ára fresti. Loftstokkahreinsunin K2 hefur séð um hreinsun á loftstokkum og loftræstikerfum fjölda fjölbýlishúsa. Hreinsun fer þá fram uppi á millilofti eða þar sem blásarinn er staðsettur. Einnig er farið inn í hverja íbúð þar sem allar ristar eru teknar niður, lagnir hreinsaðar og ef óskað er eftir þá er loftræsting sótthreinsuð með Byotrol-mistri. „Við sótthreinsun myndast polymer-húð innan á veggi loftræstikerfisins sem heldur örverum, bakteríum og öðrum óþrifnaði fjarri. Eins skiptum við út túðum þar sem þess er þörf. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur það ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki.“ Fólk finnur gífurlegan mun á loftinu eftir að það er búið að hreinsa loftstokkana eins og sést hér á umsögn eins viðskipavinar.

 

„Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum. Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K2 vann það fljótt og örugglega.“ Umsögn frá húsfélaginu í Engihjalla 7, Kópavogi.

 

Hefur þú hreinsað háfinn nýlega?

Loftstokkahreinsunin K2 býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á eldhúsháfum á heimilum sem og veitingastöðum. Nauðsynlegt er að gera reglulega úttekt á eldhúsháfum og hreinsa þá einu sinni eða oftar á ári.

 

Regluleg hreinsun eldhúsháfa stuðlar að:

  • Minni eldhættu
  • Kröftugra útsogi
  • Lengri líftíma blásara
  • Rafmagnssparnaði
  • Þægilegra vinnuumhverfi heimilismanna og starfsmanna

„Eftir fyrstu hreinsun bjóðum við upp á að koma og meta ástand á loftræstingu frá eldhúsi á nokkura mánaða fresti til að sjá hvað þarf að líða langt á milli hreinsana. Ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Stefna okkar er að vera ávallt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað. Allir okkar starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er. Ekkert verkefni er of stórt eða of smátt fyrir okkur,“ segir Sigurður.

Skrifstofur eru bæði í Reykjavík og á Reykjanesinu.

Sími: 557-7000 og vaktsími 775-7770

Vefpóstfang:  k2@k2.is Heimasíða: www.k2.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum