David Luiz hefur útskýrt af hverju hann ákvað að yfirgefa Chelsea fyrir Arsenal í sumar.
Luiz fór til Arsenal á lokadegi félagaskiptagluggans en þau skiptu komu nánast öllum á óvart.
Luiz segist hafa rætt við Frank Lampard, stjóra Chelsea, og var ljóst að hann yrði ekki númer eitt í vörn liðsins á leiktíðinni.
,,Í spjallinu við Frank Lampard þá kom í ljós að hann var með önnur plön en ég fyrir árið,“ sagði Luiz.
,,Við ræddum saman í hreinskilni og hann var mjög skýr með sínar hugmyndir sem voru ekki þær sömu og mínar.“
,,Ég fékk svo tækifæri á að fá tilboð frá Arsenal sem er frábært félag.“