Hinn sterki og umdeildi Hafþór Júlíus Björnsson, einnig þekktur sem Fjallið birti í dag skemmtilega mynd af sér á Instagram síðu sinni.
Á myndinni má sjá Hafþór sitja í ansi smáum bíl, en Hafþór, sem er stærri kantinum, virðist ekki passa alveg í hann.
Hann hefur þó komið sér vel fyrir í bílnum og virðist ánægður, en hann réttir upp þumal, líkt og fólk gerir gjarnan á góðum dögum.
Með myndinni birtir Hafþór texta þar sem hann spyr hvort að hann ætti að kaupa sér bílinn.