fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Skúli í Subway gáttaður á Sveini Andra – „Ég bara spyr, hverjir hafa ekki lent í þessu?“

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. ágúst 2019 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Gunnar Sigfússon, fjárfestir sem oft er kenndur við Subway, heldur áfram að skjóta föstum skotum að Sveini Andra Sveinssyni lögmanni. Skúli skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fer hörðum orðum um Svein Andra og vinnubrögð hans sem skiptastjóri þrotabús EK 1923.

„Eftir að Sveinn Andri Sveinsson var skipaður skiptastjóri í þrotabúi EK 1923 ehf. var sextíu kröfum lýst í búið innan tilskilins frests. Sveinn Andri tók á móti þeim kröfum og skrifaði á sig 15 mínútur fyrir að taka á móti hverri kröfu og setja í möppu. Hér var ekki um að ræða vinnu við að taka afstöðu til krafnanna eða meta þær að neinu leyti, heldur einungis að móttaka þær og skrá þær,“ segir Skúli sem segir það sæta furðu að fyrirkomulag Sveins Andra sem skiptastjóri þrotabús WOW sé allt annað. Þar rukki hann ekkert fyrir móttöku einstakra krafna.

49.600 á tímann

„Þar sem tímagjald Sveins Andra er 49.600 krónur, rukkaði hann 12.400 krónur fyrir að móttaka einfalda kröfulýsingu. Nú liggur fyrir að um 6.000 kröfum var lýst í þrotabú WOW air. Eftir að Sveinn Andri og Þorsteinn Einarsson voru skipaðir skiptastjórar WOW air, var tilkynnt að kröfur í þrotabúið ætti að senda í Grjótagötu 7, á skrifstofu Sveins Andra. Sveinn Andri hefur því í sumar móttekið og sett í möppur hátt í 6.000 kröfur. Kröfuhafar í þrotabú WOW air eru um 100 sinnum fleiri en í þrotabú EK 1923 ehf. Því hefði verið eðlilegt að Sveinn Andri rukkaði u.þ.b. 74 milljónir fyrir sömu vinnu í þrotabúi WOW air. Ef réttlætanlegt er að skrifa 15 mínútna vinnu vegna móttöku einstakrar kröfu í einu þrotabúi, hlýtur það að vera eðlilegt að gera slíkt hið sama í næsta þrotabúi sem maður fær upp í hendurnar frá Héraðsdómi Reykjavíkur.“

Skúli vísar svo í viðtal Morgunblaðsins við Svein Andra frá 23. maí síðastliðnum þar sem Sveinn var spurður hvað hann ætlaði að rukka þrotabú WOW air fyrir samskonar vinnu og innt var af hendi hjá EK 1923. Sveinn Andri sagði að hann myndi ekki rukka neitt fyrir móttöku krafna.

Eins og að fara til tannlæknis

„Ástæðan væri sú að þrotabú WOW air sé óvenjulegt út frá stærð þess og „þar sé um mun stærra verkefni að ræða en hjá EK1923 og því annars eðlis“. Sveini Andra þykir því rökrétt að hann rukki fyrir vinnu sem er einn hundraðshluti af vinnu í einu þrotabúi en gefi að fullu sömu vinnu í öðru þrotabúi, þar sem vinnan er 100 sinnum meiri,“ segir Skúli sem býr til tilbúið dæmi um einstakling sem fer til tannlæknis.

„Þetta er sambærilegt því að þú færir til tannlæknis og hann tæki 100 þúsund krónur fyrir að smíða í þig tönn. Þú værir svo ánægður með nýju tönnina að þú tilkynntir tannlækninum þínum að þú myndir senda til hans 100 manns úr stórfjölskyldunni þinni og vinahópi og allir ættu að fá nýja tönn. Þegar tannlækninum væri ljóst hvert umfangið væri við tannsmíðina fyrir alla ættingja þína og vini, myndi hann tilkynna þér hátíðlega að hann myndi ekki rukka krónu fyrir þetta, þar sem verkið væri óvenjulegt út frá stærð þess og vinnan annars eðlis en hún hafi verið við þessa einu tönn hjá þér. Ég bara spyr, hverjir hafa ekki lent í þessu?“ segir hann.

Segir Svein hafa „farið ránshendi“

Skúli segir að draga megi þá ályktun af ofangreindu að Sveinn Andri hafi „farið ránshendi“ um þrotabú EK 1923 ehf. með fullu samþykki stærstu stærstu kröfuhafa þess bús.

„Sá kröfuhafi sem farið hefur fremstur í flokki, og staðið á bak við þessa vegferð Sveins Andra, krafðist þess áður en félagið fór í þrot að félag í minni eigu greiddi kröfuna beint til hans fram hjá EK ella skyldi ég hljóta verra af. Sá kröfuhafi má eiga það að hann hefur staðið við stóru orðin og hefur lögmaður þessa fyrirtækis unnið náið með Sveini Andra að því að reyna að koma sem mestu höggi á mig og mín félög. Meira um það síðar,“ segir Skúli sem bætir við að það komi aftur á móti á óvart að kröfuhafar, sem eru til dæmis fulltrúar íslenskra skattgreiðenda, skuli láta „svona rán um hábjartan dag“ viðgangast.

„Eins og ég hef áður bent á hefur Sveinn Andri Sveinsson blóðmjólkað þrotabú EK 1923 ehf. og skrifað á sig 2.400 vinnustundir fram til desember á síðasta ári. Það samsvarar hátt í einu og hálfu ári í fullri vinnu fimm daga vikunnar. Skiptastjórinn hefur þannig sogið í sinn rann um 120 milljónir króna út úr búinu í formi þóknunar fyrir vinnu við þrotabúið. Þessi vinna á að hafa farið fram samhliða fjölmörgum öðrum lögmannsstörfum og „tómstundum“ sem Sveinn Andri stundar. Gott væri fyrir skiptastjórann að hafa í huga spekina úr Hugsvinnsmálum: Illt er verkþjófur að vera.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí