Monaco í frönsku úrvalsdeildinni hefur fest kaup á framherjanum Wissam Ben Yedder.
Þetta var staðfest í dag en Ben Yedder skrifar undir fimm ára samning við Monaco.
Hann hefur gert það gott með Sevilla síðustu ár en kom til félagsins frá Toulouse árið 2016.
Ben Yedder kostar Monaco 40 milljónir evra en hann er einnig franskur landsliðsmaður.
Ben Yedder var heitur fyrir framan markið á Spáni og skoraði 70 mörk í 138 leikjum.