HK vann virkilega sterkan sigur í Pepsi Max-deild karla í kvöld er liðið mætti FH í 13. umferð sumarsins.
Leikið var í Kórnum en HK hefur svo sannarlega verið að taka við sér í undanförnum leikjum og er nú með 17 stig eftir 2-0 sigur í dag.
Emil Atlason og og Atli Arnarson gerðu mörk HK sem er nú fjórum stigum frá fallsæti.
Þetta var fyrsti sigur HK á FH í efstu deild í sögunni. Einnig var þetta þriðji deildarsigur liðsins í röð.
Á sama tíma áttust við Breiðablik og Grindavík en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Blikar náði því ekki að minnka forskot KR á toppnum niður í fimm stig en liðið er án saigurs í síðustu þremur leikjum sínum.
HK 2-0 FH
1-0 Emil Atlason(31′)
2-0 Atli Arnarson(víti, 45′)
Breiðablik 0-0 Grindavík