Manchester United er að ganga frá samningi við Dillon Hoogewerf, ungstirni Ajax.
Hoogewerf er 16 ára gamall framherji sem Ajax vildi halda, hann ákvað að semja við Manchester United.
,,Hoogewerf lét okkur vita í síðustu viku að hann ætlaði aðf ara í annað lið,“ sagði Said Ouaali, yfirmaður hjá unglingastarfi Ajax.
,,Hann er að fara í félag utan Hollands, við vonum að hann standi sig vel, við gerðum allt til að halda honum.“
Hoogewerf hefur spilað fyrir yngri landslið Hollands en hann er einnig með vegabréf frá Nígeríu.