Það er ekkert leyndarmál að Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, er ekki mikill aðdáandi Gareth Bale.
Bale fær lítið að spila á Santiago Bernabeu þessa dagana eða síðan Zidane tók aftur við keflinu.
Lokaleikur tímabilsins fór fram í dag er Real tapaði 2-0 gegn Real Betis á heimavelli.
Þetta gæti hafa verið síðasti leikur Bale hjá Real en hann er sterklega orðaður við brottför.
Þrátt fyrir 2-0 tap þá fékk Bale ekkert að koma við sögu og ætlaði Zidane aldrei að leyfa því að gerast.
,,Ef ég hefði mátt skipta fjórða leikmanninnum inná þá hefði ég ekki valið hann,“ sagði Zidane eftir leikinn í dag.
Frakkinn gerði þrjár skiptingar í tapinu en Bale sat sem fastast á varamannabekknum.