Graham Potter er að taka við liði Brighton í ensku úrvalsdeildinni og mun yfirgefa Swansea City.
Þetta fullyrða enskir miðlar í kvöld en Potter tók við Swansea fyrir tímabilið eftir dvöl í Svíþjóð.
Brighton tókst að bjarga sér frá falli á leiktíðinni en þrátt fyrir það var Chris Hughton rekinn úr starfi.
Gengi Swansea var ágætt á tímabilinu og hafnaði liðið í 10. sæti næst efstu deildar.
The Guardian segir að Brighton sé búið að borga tvær milljónir punda til Swansea og að Potter verði kynntur á næstu dögum.