Viktor Jónsson, sóknarmaður ÍA er kinnbeinsbrotinn eftir þungt högg í 2-2 jafntefli gegn Fylki, í Pepsi Max-deildinni í gær. Mbl.is segir frá.
Viktor var fluttur með sjúkrabíl úr Lautinni í Árbæ í gær en atvikið átti sér stað undir lok leiks.
Framherjinn knái kom til ÍA í vetur frá Þrótti og skoraði í fyrstu umferð, ekki er búist við að hann verði lengi frá.
„Viktor fór í myndatöku í gærkvöld og það kom í ljós að hann er kinnbeinsbrotinn. Við heyrum betur í læknum í dag. Þetta var mikið högg sem hann fékk og hann hefur sjálfsagt fengið vægan heilahristing. Viktor er grjótharður og hann verður fljótur að jafna sig. Væntanlega missir hann af næsta leik en ég geri ráð fyrir því að það verði útbúin andlitsgríma sem hann getur þá spilað með í framhaldinu,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA við mbl.is í morgun.