Lið Frankfurt í Þýskalandi hefur fengið hjálp frá þýska knattspyrnusambandinu fyrir leik gegn Chelsea í Evrópudeildinni.
Chelsea og Fankfurt eigast við í undanúrslitum keppninnar og fer síðari leikurinn fram þann 9. maí næstkomandi í London.
Venjan er að öll lið í Bundesligunni spili á sama tíma í tveimur síðustu umferðum deildarinnar.
Leikur Frankfurt og Mainz hefur þó verið færður til klukkan 18:00 á sunnudag, þann 12. maí.
Öll önnur lið munu leika sína leiki degi fyrr en þetta er gert til að hjálpa Frankfurt eftir ferðalag til Englands og til baka.
Fyrri leikur liðanna fer fram þann 2. maí í Þýskalandi en þann 27. apríl spilar Fankfurt við Hertha Berlin í deildinni.