fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Hlynur Kristinn laus úr fangelsi

Auður Ösp
Mánudaginn 6. febrúar 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlynur Kristinn Rúnarsson, sem í fyrra hlaut fimm ára fangelsisdóm í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls hefur verið látinn laus og er nú kominn til Íslands. Hlynur var handtekinn í borginni Fortaleza undir lok árs 2015 ásamt þáverandi kærustu sinni, Birgittu Gyðu Bjarnadóttur og reyndust þau vera með umtalsvert magn af kókaíni í fórum sínum. Hlutu þau bæði fimm ára fangelsisdóm í kjölfarið en líkt og DV greindi frá fyrr í dag hefur Birgitta Gyða einnig verið látin laus úr kvennafangelsi í Fortaleza. Dvelur hún nú hjá vinafólki þar í landi. Hlynur og Birgitta áfrýjuðu bæði dómnum og höfðu sigur og var tíminn sem þau áttu eftir að sitja af sér skilorðsbundinn.

Hlynur Kristinn var í viðtali við DV í febrúar 2016, en þá voru rúmlega 50 dagar liðnir síðan þau voru handtekin á Hótel Paradise i borginni Fortaleza. Ekki hafði þá verið lögð fram formleg kæra í málinu. Hlynur sagði lögregluna hafa beitt mikilli hörku við handtökuna, og hunsað mannréttindi þeirra. Eigur þeirra hefðu verið skemmdar og þau verið beitt mikilli hörku.

Þá lýsti Hlynur jafnframt aðstæðum í fangelsinu sem hann var settur í eftir að hann var fluttur af lögreglustöðinni, en þar dvaldi hann fyrst um sinn í níu manna klefa ásamt fjórum öðrum. Lýsti hann lyktinni í fangelsinu sem blöndu af „pissi og gömlum kúk“, vatnsbólið væri mengað af skordýrum og óheyrilegt magn af moskítóflugum á sveimi. Hann sagði mannréttindi fangana virt að vettugi, og spillingin allsráðandi.

„Hér eru fangar sem ekki er búið að sanna neitt á, saklaust fólk sem er komið fram við eins og villidýr. Verðirnir nota táragas, piparúða og barefli hiklaust á fanga sér til skemmtunar. Þetta er eins og stóri strákurinn sem níðist á minni máttar.“

Glæpamannaverksmiðjur

Hlynur var síðar fluttur í annað fangelsi, sem heitir Cppl Un. Þar fékk Hlynur ekki að taka með eigur sínar og var því allslaus. Þurfti hann því að sofa á steinsteypugólfi, án dýnu. Lýsti hann því þannig að hann hefði aðeins fengið um fjórar klukkustundir af útiveru og þá á mjög afmörkuðu svæði með engu útsýni.

„Hér er mönnum hent inn í fangelsi og maður upplifir mannréttindabrot, niðurlægingu og ófagmannlega hegðun yfirvalda,“ sagði Hlynur og bætti við að fangelsin í Brasilíu væru ekki betrunarvist heldur væri einungis verið að framleiða fleiri glæpamenn. Hann viðurkenndi jafnframt að hafa gert mistök, og kvaðst sjá eftir þeim.

„Ég gerði mistök, ég ætlaði að koma mér alveg út úr þeim vítahring sem ég var kominn í. Ég treysti mönnum fyrir frelsi mínu sem ég þekki lítið sem ekki neitt. Ég er samt góð manneskja sem á skilið mannréttindi. Ég er með hreina sakaskrá og hef aldrei beitt mér á illan hátt í garð einhvers. Ég vill öllum vel, að hjálpa og reynast öllum vel. Það er vandamálið. Þetta hafa ákveðnir aðilar nýtt sér til að hafa hag af minni vinnusemi og minni getu.“

Hlynur Kristinn er eins og áður segir laus úr fangelsi og er kominn til Íslands.

Uppfært: Hlynur Kristinn neitar að vera kominn til Íslands og segist vera enn í Brasilíu en segir að hann sé laus úr fangelsi rétt eins og Birgitta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð