Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United, hataði Arsenal er hann spilaði með félaginu.
Það var mikill rígur á milli þessara liða á meðan Giggs spilaði á Old Trafford en bæði félög voru með frábæra leikmenn innanborðs.
Giggs hefur nefnt fjóra leikmenn sem hann þoldi ekki í liði Arsenal og vildi ekkert með þá hafa á þessum tíma.
,,Mér líkaði aldrei við Arsenal. Mér líkaði ekki við Patrick Vieira því hann var óheiðarlegur og komst upp með morð,“ sagði Giggs.
,,Mér líkaði ekki við Emmanuel Petit því hann var með langt hár. Mér líkaði heldur ekki við Dennis Bergkamp.“
,,Mér líkaði ekki við Robert Pires jafnvel þó að hann sé mjög vinalegur þegar þú hittir hann í dag.“
,,Ég horfði ekki einu sinni á þá, ég þekkti þá ekki og vildi ekki þekkja þá. Ég leyfði mér ekki að vera hrifinn af neinum þeirra.“