Chelsea hefur kvartað til UEFA vegna hegðun stuðningsmanna Dynamo Kiev í Úkraínu.
Frá þessu er greint í dag en Chelsea spilaði við Dynamo í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Þar hafði liðið betur örugglega 5-0 en leikið var í Úkraínu á heimavelli Dynamo.
Callum Hudson-Odoi lék með Chelsea í leiknum en hann varð fyrir kynþáttahatri í viðureigninni.
Lítill hópur af stuðningsmönnum Dynamo var með kynþáttaníð í garð vængmannsins undir lok leiksins í vikunni.
Chelsea hefur staðfest að félagið hafi rætt við UEFA vegna Hudson-Odoi sem er aðeins 18 ára gamall.