fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
Kynning

Rekstrarumsjón: Húsfélagaþjónusta og útleiga á fasteignum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 18. mars 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við þjónustum öll húsfélög, stór og smá, en það veltur svo á þörfum hvers og eins húsfélags hvaða þjónustuleið er valin. Það eru allir velkomnir í þjónustu til okkar og tökum við mið af stærð og umfangi hvers og eins,“ segir Bjartmar Steinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri Rekstrarumsjónar. Um er að ræða fjölskyldufyrirtæki í eigu rótgróinna Hafnfirðinga sem eru tengdaforeldrar Bjartmars og börn þeirra, en hann stjórnar rekstri þess ásamt mágkonu sinni, Helgu Soffíu Guðjónsdóttur.

Fyrir húsfélög eru í boði þrjár rekstrarleiðir. Sú fyrsta lýtur að fjármálum og innheimtu en í rekstrarleið 2 bætist við fundaþjónusta. Rekstrarleið 3 er síðan full þjónusta. Nánari útfærslu á þjónustuleiðunum gefur að líta á vefnum rekstrarumsjon.com.

Eins og gefur að skilja er ógnarmikil hagræðing fólgin í því að flytja verkefni húsfélags í hendur þjónustuaðila á borð við Rekstrarumsjón: „Við hugsum starf okkar fyrir húsfélögin á þá leið að við séum verkfæri sem auðveldi stjórnum og íbúum hvers og eins húsfélags verulega vinnuna. Íbúar, og þá sérstaklega stjórnir húsfélaga, finna almennt fyrir miklum létti eftir að rekstri húsfélags er komið í okkar hendur þar sem mikið álag getur fylgt því að reka húsfélag,“ segir Bjartmar. Viðskiptavinir Rekstrarumsjónar eru afar ánægðir með þjónustuna enda leggur fyrirtækið þunga áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu. Í fullri þjónustu ber Rekstrarumsjón hitann og þungann af því að verkefni komist í framkvæmd og viðhald sé gott: „Þegar við fáum beiðnir frá hússtjórnum þá sinnum við öllu frá a til ö og afhendum málin fullunnin aftur til stjórnarinnar. Við höldum vel á spöðunum og fylgjum því eftir að öll verkefni séu unnin vel og samkvæmt áætlun,“ segir Bjartmar.

Útleiga á fasteignum

Það getur verið mikil fyrirhöfn fyrir fasteignaeigendur að sjá um útleigu og rekstur á fasteignum sínum. Þar kemur Rekstrarumsjón til sögunnar með hinn hluta þjónustu sinnar; útleigu fasteigna, og sinnir jafnt útleigu á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Þetta auðveldar eigendum að leigja út sínar fasteignir og takmarkar vinnu þeirra í tengslum við útleiguna. Utanumhald leigutekna og eftirlit með því að leigutekjur skili sér kemur í hlut Rekstrarumsjónar, sem bregst þá hratt og örugglega við ef vanskil eiga sér stað.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni rekstrarumsjon.com og Facebooksíðunni Rekstrarumsjón

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea