Ilkay Gundogan, leikmaður Manchester City, var í fríi í gær og nýtti hann daginn í miðborg Manchester.
Gundogan er mjög mikilvægur hlekkur í liði City en hann kom til félagsins frá Borussia Dortmund.
Þessi 28 ára gaml leikmaður kíkti í búðir og skoðaði á meðal annars knattspyrnutreyjur.
Það voru nokkrar eldri treyjur sem vöktu athygli Gundogan en það voru gamlar treyjur Manchester United.
Gundogan heimsótti búð í Manchester þar sem eldri treyjur eru til sölu og var miðjumaðurinn hrifinn.
Það er þó óhætt að búast við því að Gundogan hafi ekki keypt treyju United enda mikill rigur á milli liðsins og City.