Mario Balotelli, fyrrum leikmaður Manchester City, horfði á leik Manchester United og Paris Saint-Germain í kvöld.
PSG heimsótti United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hafði betur með tveimur mörkum gegn engu.
Það fannst Balotelli mjög skemmtilegt en hann er ekki mikill aðdáandi United eftir dvöl hjá City og svo Liverpool.
Hann skemmti sér á Twitter síðu sinni yfir leiknum og tókst að pirra þónokkra stuðningsmenn United.
Balotelli spilar í dag með liði Marseille í Frakklandi en hann kom þangað frá Nice í janúar.
Balotelli gerði mistök með þessum færslum en stuðningsmenn Marseille þola ekki PSG og þeirra stuðningsmenn.
Það fór mjög illa í stuðningsmenn Marseille að sjá þessar færslur Balotelli og að hann hafi haldið með PSG í leiknum.
Hér má sjá færslur hans í kvöld.
MAN UTD OOOOOLÈ? pic.twitter.com/JBw4rz3ywE
— Mario Balotelli (@FinallyMario) 12 February 2019
City fans happy?! Good night ??
— Mario Balotelli (@FinallyMario) 12 February 2019
⚽️
— Mario Balotelli (@FinallyMario) 12 February 2019