fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Svavar í vandræðum – Þarf að prumpa til að finna lyklakippuna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. febrúar 2019 18:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Konan mín er alltaf að týna bíllyklunum sínum. Þess vegna gaf ég henni einu sinni í jólagjöf lyklakippu sem hægt er að forrita þannig, að hún þekkir rödd eigandans og svarar þá með klingjandi bjölluhljómi. Gjöfin vakti gleði enda bæði hagnýt og frumleg.“

Þannig hefst bráðskemmtilegur pistill eftir séra Svavar Alfreð Jónsson sem birtur er í fréttablaðinu Norðurlandi. Svavar heldur áfram:

„Síðla aðfangadagskvölds var uppþemban í meltingarfærunum eftir þungt borðhald orðin mér það óbærileg, að ég læddist fram í forstofu, lokaði hljóðlega á eftir mér og hleypti af mesta þrýstingnum með allnokkrum fyrirgangi,“ segir Svarar og heldur áfram:

„Var mér óðara svarað með háværu tísti úr lyklaskálinni.“

Upplýsir Svavar að hljóðið hafi komið frá lyklakippunni sem hafði verið lagt þar eftir að einhver hafði fiktað í henni.

„Með tístinu var kippan að gefa til kynna, að í henni hefði verið sett af stað óafturkræft raddþekkingarferli.“

Ægileg staðreyn rann upp fyrir Svavari að nú þyrfti hann að leysa vind hvað eftir annað ef ske kynni að lyklakippan myndi tínast.

„ … Yrði ég að ganga um svæðið, kallandi á lyklakippuna með þeirri þrumuraust, sem tækið hafði verið forritað til að þekkja, hvort sem við hjónin værum heima eða gestir í virðulegum samkvæmum úti í bæ.“

En hvað varð svo á endanum um kippuna góðu? Svavar útskýrir það á eftirfarandi hátt:

„Þannig atvikaðist það að þessi umræddu jól týndi frú Bryndís ekki bíllyklunum sínum heldur glataðist nýja lyklakippan hennar með dularfullum hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sigurður Orri nýr framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins

Sigurður Orri nýr framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Brast í grát er hann kvaddi í dag – Myndband

Brast í grát er hann kvaddi í dag – Myndband
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.